Fara í efni

Forsetahjónin í heimsókn í Múlaþingi

07.08.2026 Fréttir

Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, heimsótti Múlaþing ásamt eiginmanni sínum Birni Skúlasyni dagana 24.-25. júlí. Megintilgangur heimsóknarinnar var að njóta tónlistarhátíðarinnar Bræðslunnar á Borgarfirði en þau hjónin náðu einnig að heimsækja fleiri staði og kynna sér menningarlíf, náttúru og atvinnustarfsemi á svæðinu.

Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri tók á móti forsetahjónunum við Stuðlagil á Jökuldal en hjónin komu akandi frá Húsavík. Þar skoðuðu þau þennan fjölfarna ferðamannastað og þá uppbyggingu sem þar hefur átt sér stað og snæddu síðan hádegisverð á Hak bistro og café á Hákonarstöðum.

Eftir það lá leiðin á Borgarfjörð þar sem þau heimsóttu Hafnarhólma, Bakkagerðiskirkju, Álfakaffi, KHB Brugghús og Lindarbakka auk þess að koma við á regnbogahátíð Hinsegin Austurlands sem fram fór í Fjarðarborg. Um kvöldið lá svo leiðin á tónlistarhátíðina Bræðsluna. Þar hittu þau skipuleggjendur hátíðarinnar, listafólk og gesti og hlýddu á fjölbreytta dagskrá hátíðarinnar.

Daginn eftir lá leiðin í Vök baths við Urriðavatn þar sem hjónin nutu þess besta sem böðin hafa upp á að bjóða en að því loknu var snæddur hádegisverður á Frú Nielsen á Egilsstöðum og síðan litið við á Setrinu vinnustofu. Síðast en ekki síst fór hópurinn á flughátíðina Flug og Fáka sem fram fór á Egilsstaðaflugvelli en þar fengu forsetahjónin meðal annars góða kynningu á starfsemi Landhelgisgæslunnar áður en þau héldu heim á leið.

„Það var sannur heiður að fá að verja helginni með forsetahjónunum og sýna þeim brot af því sem Múlaþing hefur upp á að bjóða“ segir Dagmar Ýr sveitarstjóri. „Forsetinn hefur einsett sér að heimsækja Múlaþing aftur síðar og ég hlakka til að taka aftur á móti henni þá og sýna henni fleiri perlur í okkar víðfeðma sveitarfélagi“.

Forsetahjónin í heimsókn í Múlaþingi
Getum við bætt efni þessarar síðu?