Fjárhagsáætlun Múlaþings fyrir árið 2027, ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2028–2030, var lögð fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn í dag, miðvikudaginn 11. nóvember. Áætlunin gerir ráð fyrir 566 milljóna króna afgangi af rekstri A- og B-hluta. Útsvar er óbreytt en fasteignaskattur lækkar. Seinni umræða fer fram 9. desember.
Lykilpunktar
- Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta jákvæð um 566 m.kr. og A-hluta um 180 m.kr.
- Veltufé frá rekstri 1.711 m.kr., eða 13,3% af tekjum
- Skuldaviðmið 90,5%, vel undir 150% hámarki, og lækkar í 81,7% árið 2030
- Útsvar óbreytt, 14,97%
- Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækkar úr 0,45% í 0,43% og á atvinnuhúsnæði úr 1,625% í 1,60%
- Almennar gjaldskrár hækka mest um 2,5%
- Nettó fjárfestingar 1.640 m.kr. á árinu og 6,4 milljarðar 2027–2030
- Afborganir lána eru hærri en nýjar lántökur öll ár áætlunarinnar
Rekstur og afkoma
Gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaða samstæðunnar, A- og B-hluta, verði jákvæð um 566 milljónir króna árið 2027, samanborið við 519 milljónir samkvæmt útkomuspá 2026.
A-hluti skilar 180 milljóna króna afgangi. Það er viðsnúningur frá árinu 2025, þegar 372 milljóna halli varð á rekstri A-hluta. Framlegð samstæðunnar er 14,5% og veltufé frá rekstri 1.711 milljónir, sem dugar fyrir afborgunum og vöxtum af langtímalánum. Lægri fjármagnskostnaður vegna minni verðbólgu á mikilvægan þátt í betri niðurstöðu, en framlegð samstæðunnar stendur nánast í stað milli ára.
„Tillagan gerir ráð fyrir jákvæðri afkomu og áframhaldandi uppbyggingu. Hún kallar jafnframt á aðhald, því svigrúmið til að mæta óvæntum útgjöldum er takmarkað,“ sagði Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri við fyrri umræðu. „Markmið okkar er sem fyrr að tryggja góða þjónustu við íbúa og halda áfram nauðsynlegri uppbyggingu á traustum fjárhagslegum grunni.“
Tekjur og forsendur
Rekstrartekjur samstæðunnar eru áætlaðar 12,8 milljarðar króna árið 2027, sem er 3,7% hækkun frá útkomuspá þessa árs. Útsvarstekjur hækka um 6,4% og eru um 37% af tekjum. Framlög Jöfnunarsjóðs nema 3,6 milljörðum og hækka um 2,1%.
Áætlunin byggir á að verðbólga verði 3,6% á næsta ári og 2,5% eftir það. Gert er ráð fyrir að íbúum fjölgi um 40 á ári og verði 5.435 í árslok 2030.
Skattar og gjöld heimilanna
Útsvarshlutfall verður óbreytt, 14,97%. Til að mæta hækkun fasteignamats lækkar fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði úr 0,45% í 0,43% og á atvinnuhúsnæði úr 1,625% í 1,60%. Fráveitugjald lækkar einnig.
Byggðaráð hefur samþykkt að almennar gjaldskrár í A-hluta hækki ekki umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans, 2,5%.
Gjöld og þjónusta
Laun og launatengd gjöld nema 6,9 milljörðum króna og hækka um 5,9% milli ára, fyrst og fremst vegna kjarasamninga. Fræðslu- og uppeldismál eru langstærsti málaflokkurinn: af hverjum 100 krónum í skatttekjum fara 51 króna til skóla og leikskóla.
Fjárfestingar og uppbygging
Nettó fjárfestingar samstæðunnar eru áætlaðar 1.640 milljónir króna árið 2027 og um 6,4 milljarðar á árunum 2027–2030. Á móti koma um 4,2 milljarðar í framlögum og styrkjum, meðal annars frá Hafnabótasjóði og Ofanflóðasjóði. Meðal verkefna árið 2027:
- Safnahúsið á Egilsstöðum: 250 m.kr.
- Grunnskóli Seyðisfjarðar: 147 m.kr., samtals 979 m.kr. til 2029
- Ofanflóðavarnir á Seyðisfirði: 350 m.kr., að mestu fjármögnuð af Ofanflóðasjóði
- Wathnehús á Seyðisfirði: 100 m.kr., fjármagnað af Minjastofnun
- Herðubreið, bókasafn og skrifstofur: 80 m.kr.
- Bjarkartún, stækkun starfsmannarýmis: 60 m.kr.
- Gatnagerð, stígar og útivistarsvæði: 150 m.kr.
- Hafnir Múlaþings: 400 m.kr. nettó, meðal annars hafist handa við lengingu Strandarbakkahafnar á Seyðisfirði
Jafnframt hefur verið lagður fram 10 ára fjárfestingarrammi A-hluta upp á 7,05 milljarða nettó á árunum 2027–2036.
Skuldir og fjármálareglur
Nýjar lántökur eru áætlaðar 950 milljónir árið 2027 en afborganir langtímalána 978 milljónir. Á árunum 2027–2030 eru afborganir 4,5 milljarðar en ný lán 3,5 milljarðar. Skuldaviðmið samstæðunnar er 90,5% árið 2027 og lækkar í 81,7% árið 2030. Jafnvægisregla og skuldaregla sveitarstjórnarlaga eru uppfylltar öll ár áætlunarinnar. Handbært fé samstæðunnar í árslok er áætlað 469 milljónir.
Verðbólga og launaþróun eru meðal stærstu óvissuþáttanna. Hvert prósentustig til viðbótar í verðbólgu jafngildir um 90 milljónum króna í auknar verðbætur hjá samstæðunni.
Næstu skref
Fjárhagsáætlun 2027–2030 fer til seinni umræðu í sveitarstjórn 9. desember 2026. Fjárhagsáætlunin og greinargerð með henni eru hér.