Fara í efni

Höfnin á Seyðisfirði stígur skref í átt að grænni framtíð

01.10.2026 Fréttir Seyðisfjörður

Í gær var formlega vígður nýr búnaður sem komið hefur verið upp á Strandarbakka á Seyðisfirði. Um er að ræða raftengingarbúnað fyrir ferjuna Norrönu og er með þessu verkefni stigið fyrsta skrefið í rafvæðingu hafna Múlaþings. Þessi búnaður gerir Smyril Line, sem rekur ferjuna Norrönu, kleift að draga verulega úr losun skipsins með því að tengjast rafmagni frá landi og slökkva á vélum sínum á meðan ferjan liggur í höfn.

Minni losun í höfninni hjálpar til við að varðveita hreint loft, náttúrufegurð og kyrrð sem einkenna upplifunina af Seyðisfirði. Fyrir heimamenn tryggir þetta að vaxandi ferðaþjónusta fylgi sterkum umhverfissjónarmiðum og langtímamarkmiði um sjálfbærni.

Seyðisfjörður er þekktur fyrir stórbrotið fjallalandslag, fossaríkar hlíðar og litríkar timburhúsaraðir. Höfnin á Seyðisfirði er mikilvæg tenging Íslands við Evrópu og gegnir lykilhlutverki í dreifingu ferðamanna um landið.

Að verkefninu komu, auk hafna Múlaþings, ShoreLink sem afhenti RoRoLink Fixed raftengingarbúnaðinn í samvinnu við EFLU verkfræðistofu og Smyril Line. Heildarkostnaður við verkefnið var 95 milljónir króna sem greitt var af hafnarsjóði en ríkissjóður styrkti verkefnið um 2,6 milljónir úr Orkusjóði.

Til þess að vígja búnaðinn formlega klipptu Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitar- og hafnarstjóri Múlaþings og Bogi Pedersen skipstjóri Norrönu á borða fyrir framan búnaðinn og tóku hann þar með formlega í notkun. „Við stígum stórt skref hér í dag með því að klippa á þennan borða því þetta verkefni markar upphaf grænnar umbreytingar í höfnum Múlaþings. Við erum afar ánægð með það samstarf sem við eigum við Smyril Line hér á Seyðisfirði og þetta verkefni er enn eitt dæmið um þessa góðu samvinnu og sýnir að við höfum sameiginlega sýn á það að vilja standa okkur vel þegar kemur að umhverfismálum hafnarinnar okkar“, sagði Dagmar Ýr þegar klippt var á borðann.

Þegar stuttri athöfn á höfninni var lokið var gestum boðið að þiggja kaffiveitingar í Herðubreið til að fagna áfanganum.

Höfnin á Seyðisfirði stígur skref í átt að grænni framtíð
Getum við bætt efni þessarar síðu?