Fara í efni

Hugur okkar er hjá þeim sem eiga um sárt að binda

26.11.2026 Fréttir

Sveitarfélagið Múlaþing sendir innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldna og ástvina sjómannanna þriggja sem létust í gær þegar Jökull ÞH 299 sökk.

Hlýjar kveðjur eru jafnframt sendar til þeirra 14 skipverja sem bjargað var og þeirra nánustu.

Hugur samfélagsins alls er hjá þeim sem lentu í slysinu, aðstandendum þeirra og öðrum sem komu að björgunaraðgerðunum á einn eða annan hátt.

Bestu þakkir eru sendar til þeirra viðbragðsaðila sem svöruðu kalli og unnu þrekvirki við björgunarstörf þar sem aðstæður voru afar krefjandi. Það er ólýsanlegur auður í því fólki sem er ávallt til taks og reiðubúið að leggja öðrum lið og vinna óeigingjarnt starf, oft á tíðum við lífshættulegar aðstæður.

Að baki hverjum einstaklingi sem svarar slíku útkalli er manneskja og aðstandendur hennar. Mikilvægt er að muna að þau þurfa einnig að vinna úr sinni upplifun og að atburðir sem þessir geta haft áhrif á líðan þeirra.

Áfallahjálp Rauða krossins stendur skipverjum og aðstandendum til boða. Hjálparsími Rauða krossins, 1717, er einnig opinn allan sólarhringinn og þangað geta allir leitað og fengið stuðning, hlustun og ráðgjöf. Þá er hægt að hafa samband við heilsugæsluna í síma 1700 sem og félagsþjónustu sveitarfélagsins. Kirkjan er sömuleiðis til taks fyrir þau sem þurfa á stuðningi að halda.

Landið okkar er lítið og samfélögin samofin. Atburðir sem þessir snerta okkur mörg, óháð því hvort við tengjumst þeim sem í hlut eiga. Það er eðlilegt að finna fyrir margvíslegum tilfinningum í kjölfar slíkra atburða. Öll eru því hvött til að huga vel að sjálfum sér og sínum nánustu. Finnir þú þörf fyrir að ræða hugsanir þínar og tilfinningar skaltu ekki hika við að leita til einhvers sem þú treystir persónulega eða einhverra þeirra fagaðila sem taldir eru upp hér að ofan.

Hugur okkar er hjá þeim sem eiga um sárt að binda
Getum við bætt efni þessarar síðu?