Fara í efni

Íbúð til leigu á Borgarfirði

05.10.2026 Borgarfjörður Auglýsingar

Múlaþing auglýsir til leigu íbúðina Dagsbrún 2 á Borgarfirði eystra. Um er að ræða 86 fermetra íbúð með tveimur svefnherbergjum í parhúsi.

Um útleiguna og úthlutun gilda reglur um úthlutun á almennu leiguhúsnæði í eigu Múlaþings (aðrar en félagslegar íbúðir). Heimastjórn Borgarfjarðar annast úthlutun leiguíbúðanna í samræmi við 3. grein fyrrgreindra reglna.

Tekið er á móti umsóknum í gegnum Mínar síður Múlaþings.

Skilafrestur umsókna er til og með 26. október.

Mynd: Hafþór Snjólfur
Mynd: Hafþór Snjólfur
Getum við bætt efni þessarar síðu?