Fara í efni

Jónína Lovísa tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna

05.10.2026 Fréttir Egilsstaðir

Jónína Lovísa Kristjánsdóttir, sérkennari við Egilsstaðaskóla og kennsluráðgjafi hjá Múlaþingi, hefur verið tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 í flokknum framúrskarandi kennsla. Jónína Lovísa er tilnefnd fyrir einstakt framlag til menntunar, velferðar og farsældar barna og ungmenna.

Jónína Lovísa hefur starfað við Egilsstaðaskóla í 15 ár en kenndi áður við leikskólann Tjarnarland á Egilsstöðum. Samhliða kennslu hefur hún gegnt stjórnunarstörfum, lagt sitt af mörkum til þróunar skólastarfs og sérhæft sig í vinnu með einhverfum börnum.

Í tilnefningunni segir að í störfum sínum hafi Jónína lagt megináherslu á að mynda traust og mæta nemendum þar sem þeir eru staddir með virðingu sem kalli meðal annars á að vera tilbúin að fara ólíkar leiðir að markmiðum. Þekking hennar, reynsla og leiðtogahæfni hafi haft jákvæð áhrif á nemendur, samstarfsfólk og skólasamfélagið í heild. „Jónína er fyrirmynd í starfi, leiðtogi á sínu sviði og sannkallaður talsmaður farsældar barna. Starf hennar hefur haft djúpstæð og varanleg áhrif á ótal nemendur, fjölskyldur og samstarfsfólk.“

Þá er verkefnið Söngvavor: Samstarf um tónlistaruppeldi, málrækt og jöfn tækifæri barna einnig tilnefnt til verðlaunanna í flokki þróunarverkefna en leikskólarnir Tjarnarskógur og Hádegishöfði og tónlistarskólarnir á Egilsstöðum og í Fellabæ hafa verið meðal þátttakenda í því verkefni. 

Íslensku menntaverðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í nóvember.

Mynd: Jónína Lovísa Kristjánsdóttir
Mynd: Jónína Lovísa Kristjánsdóttir
Getum við bætt efni þessarar síðu?