Fara í efni

Kynningarfundir fyrir foreldra um breytingar á leikskólastarfi í Múlaþingi

12.11.2026 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Í kjölfar samþykktar sveitarstjórnar Múlaþings á breytingum á skipulagi og starfsumhverfi leikskóla verða haldnir kynningarfundir fyrir foreldra og forráðamenn barna í leikskólum sveitarfélagsins dagana 16.–25. nóvember næstkomandi.

Farið yfir helstu breytingar

Á fundunum verða breytingarnar kynntar og farið sérstaklega yfir nýja gjaldskrá, afslætti vegna styttri dvalartíma, fyrirkomulag skráningardaga og innleiðingu breytinganna. Um kynninguna sjá Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu og Marta Wium Hermannsdóttir leikskólafulltrúi.

Markmiðið er að veita foreldrum skýrar upplýsingar um breytingarnar, hvaða áhrif þær hafa á leikskóladvöl barna og hvaða möguleika foreldrar hafa til að nýta sér það fyrirkomulag sem tekið verður upp.

Tímasetningar kynningarfunda

  • Mánudagur 16. nóvember: Glaumbær klukkan 16:00
  • Þriðjudagur 17. nóvember: Hádegishöfði klukkan 17:00
  • Þriðjudagur 17. nóvember: Tjarnarskógur klukkan 20:00
  • Mánudagur 23. nóvember: Leikskóladeild Seyðisfjarðarskóla klukkan 17:00
  • Þriðjudagur 24. nóvember: Brúarás klukkan 15:15
  • Miðvikudagur 25. nóvember: Bjarkatún klukkan 17:00 

Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að mæta á kynningarfund í sínum leikskóla, kynna sér breytingarnar og nýta tækifærið til að bera fram spurningar.

Kynningarfundir fyrir foreldra um breytingar á leikskólastarfi í Múlaþingi
Getum við bætt efni þessarar síðu?