Fara í efni

Lagarfell endurnýjun veitulagna

10.07.2026 Fréttir Egilsstaðir

Múlaþing, HEF veitur og Rarik hefja á mánudaginn vinnu við endurnýjun veitulagna í Lagarfelli frá Lágafelli að Einhleyping.  Líkur eru á að verkið taki um 8 vikur og munu truflanir vera á umferð á meðan að á verkinu stendur og gatan yfirleitt lokuð á einhverjum köflum hverju sinni.

Akandi vegfarendum er bent á að nýta Einhleyping til að komast leiðar sinnar. Ávalt á að vera fært fyrir gangandi umferð framhjá vinnusvæðinu og heim að öllum heimilum en tímabundið mun lokast heim að húsum og inn í götur fyrir bílaumferð og þurfa íbúar að vera vakandi fyrir því að lokast ekki inni með bíla sína.

Strætó mun frá mánudeginum hafa eina upphafs- og endastöð sem verður við Fellaskóla / Hádegishöfða, sjá nánar í frétt um breytinguna.

Múlaþing biður vegfarendur og íbúa á svæðinu fyrirfram afsökunar á því ónæði sem þessum framkvæmdum mun óhjákvæmilega fylgja. Við vonumst jafnframt eftir góðri samvinnu við alla á svæðinu á meðan að á verki stendur og verktaka verði sýnd tillitssemi svo verkið geti gengið sem allra best fyrir sig.

Verktaki í framkvæmdinni er Austurverk og eftirlitsmaður Bogi Kárason.

Lagarfell endurnýjun veitulagna
Getum við bætt efni þessarar síðu?