Fara í efni

Lausaganga hunda er bönnuð innanbæjar

03.09.2026 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Að gefnu tilefni eru hundaeigendur minntir á að lausaganga hunda er bönnuð innan þéttbýlis í Múlaþingi. Það á einnig við um útivistarsvæði og gönguleiðir fjarri íbúðabyggð en nokkuð hefur borið á lausum hundum í Selskógi á Egilsstöðum.

Hundar eiga alltaf að vera í taumi aðila sem hefur fullt vald yfir þeim. Þó mega hundar vera lausir í tryggu gerði innan lóðar eða á hundasvæði. Tvö hundasvæði eru innanbæjar í Múlaþingi, á Egilsstöðum og á Seyðisfirði.

Umsjónarmönnum hunda er ávallt skylt að hirða upp saur eftir hundinn og losa í viðeigandi sorpílát.

Utan þéttbýlis er heimilt að sleppa hundum lausum undir eftirliti umsjónarmanns, án þess þó að gengið sé á rétt viðkomandi landeiganda. Umsjónarmaður skal tryggja að hundur valdi ekki öðrum ónæði, skapi ekki hættu eða óöryggi og hlýði innkalli. Þetta ber að hafa sérstaklega í huga í nágrenni við búfénað og á varptíma fugla frá 1. maí til 15. ágúst.

Virðum reglurnar og stuðlum að betra gæludýrasamfélagi í Múlaþingi.

Samþykkt um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald má nálgast á heimasíðu Múlaþings.

Lausaganga hunda er bönnuð innanbæjar
Getum við bætt efni þessarar síðu?