Samkvæmt dagatali ætti sumarið að vera á næsta leiti og því er verið að undirbúa komu þess víða. Það á meðal annars við um íþróttamiðstöðvar og sundlaugar sveitarfélagsins.
Þar af leiðandi er starfsfólk sundlaugana á námskeiði og þau íþróttamannvirki sem þurfa eru að fá smá upplyftingu.
Vegna þessa verður lokað í Sundhöllinni á Seyðisfirði á morgun, 2. júní.
Á Djúpavogi var lokað þann 26. maí og verður opnað aftur samkvæmt sumaropnun þann 3. júní.
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum lokar á morgun 2. júní og opnar aftur þann 8. júní.
Það má lesa allt um almenna opnunartíma íþróttamannvirkja og sundlauga á heimasíðu sveitarfélagsins.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa.