Ráðningar í leikskólum Múlaþings hafa almennt gengið þokkalega fyrir upphaf nýs skólaárs. Í Tjarnarskógi hefur hins vegar ekki tekist að fullmanna skólann þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar eftir starfsfólki.
Vegna stöðunnar hefur þurft að seinka aðlögun hluta þeirra barna sem áttu að hefja leikskólagöngu nú í haust. Leikskólinn mun þó geta tekið á móti hluta barnanna með því að bjóða upp á styttri dvöl. Það er ljóst að staðan getur valdið óþægindum og óvissu fyrir þær fjölskyldur sem um ræðir.
Áfram verður unnið að ráðningum og vonast er til að hægt verði að taka á móti börnunum eins fljótt og mönnun leyfir. Leikskólastjóri verður í reglulegu sambandi við foreldra þeirra barna sem bíða eftir að hefja aðlögun og upplýsir þá um stöðuna og framvindu mála.
Sveitarfélagið hvetur áhugasama til að kynna sér laus störf í Tjarnarskógi. Störfin eru fjölbreytt og gefandi þar sem unnið er með börnum og samstarfsfólki að því mikilvæga verkefni að skapa börnum öruggt, þroskandi og gott leikskólaumhverfi.
Nánari upplýsingar eru um störfin og hægt að sækja um þau á starfasíðu sveitarfélagsins hjá Alfreð eða á heimasíðu Múlaþings undir Laus störf.