Fara í efni

Múlaþing auglýsir íbúð til leigu á Borgarfirði

10.11.2022 Fréttir

Múlaþing auglýsir til leigu íbúðina Lækjargrund 2 á Borgarfirði eystra. Um er að ræða 68,4 fermetra íbúð með tveimur svefnherbergjum, í parhúsi. Í húsinu er ein varmadæla og skiptist kyndikostnaður á milli íbúðanna í húsinu eftir stærð.

Um útleiguna og úthlutun gilda reglur um úthlutun á almennu leiguhúsnæði í eigu Múlaþings (aðrar en félagslegar íbúðir). Heimastjórn Borgarfjarðar annast úthlutun leiguíbúðanna í samræmi við 2. grein fyrrgreindra reglna og tekur meðal annars mið af tekju- og eignamörkum.

Tekið er á móti umsóknum í gegnum Mínar síður Múlaþings .Umsækjendum um íbúðina er bent á að skattframtal síðasta árs þarf að fylgja umsókn.

Skilafrestur umsókna er til og með 23. nóvember.

Múlaþing auglýsir íbúð til leigu á Borgarfirði
Getum við bætt efni þessarar síðu?