Fara í efni

Múlaþing styður fyrirtæki í heimabyggð – fyrirtæki hvött til að taka þátt

20.11.2026 Fréttir

Í ár fær starfsfólk Múlaþings gjafabréf í jólagjöf sem hægt verður að nýta til kaupa á vörum og þjónustu í heimabyggð.

Því er leitað að fyrirtækjum í sveitarfélaginu sem vilja taka þátt og bjóða starfsfólki Múlaþings að nýta gjafabréfin til þess að kaupa vörur eða þjónustu hjá sér.

Skráningar fara fram í gegnum meðfylgjandi hlekk og þurfa að berast í síðasta lagi 30. nóvember: Ég vil bjóða upp á vöru eða þjónustu fyrir starfsfólk Múlaþings.

Starfsfólk mun síðan hafa aðgang að lista yfir þau fyrirtæki sem taka þátt í verkefninu og getur þannig valið hvar gjafabréfin eru nýtt.

Verkefnið er unnið í samstarfi við Þjónustusamfélagið á Héraði og Gjafabref.is.

Fyrir þau sem þurfa frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við eftirfarandi aðila:

  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir, sviðsstjóri mannauðs og þjónustu hjá Múlaþingi, sigrun.holm@mulathing.is
  • Guðmundur Þór Þórðarson, formaður Þjónustusamfélagsins á Héraði, gummi@vaskur.is
  • Íris Hrund Sigurðardóttir, þjónustufulltrúi hjá gjafabref.is, info@gjafabref.is
Múlaþing styður fyrirtæki í heimabyggð – fyrirtæki hvött til að taka þátt
Getum við bætt efni þessarar síðu?