Fara í efni

Múlaþing styður vel við björgunarsveitir sveitarfélagsins

11.11.2026 Fréttir

Múlaþing er með sameiginlegan fastan styrktarsamning við allar björgunarsveitir sveitarfélagsins sem hljóðar upp á 10,3 milljónir króna á þessu ári. Þá hafa björgunarsveitum verið veittir sérstakir styrkir á móti gatnagerðargjöldum þegar þær hafa farið í byggingarframkvæmdir og voru tveir slíkir styrkir veittir á síðasta ári. Einnig hafa verið veittir smærri styrkir tengdir ákveðnum viðburðum í hverjum byggðarkjarna fyrir sig þegar svo ber undir.

Nú var einnig ákveðið að styrkja sveitirnar með kaupum á stórum Neyðarkalli en þar sem sveitirnar í Múlaþingi eru alls fimm talsins var ákveðið að skiptast á að kaupa af þeim þessa táknrænu styttu. Þetta árið var karlinn keyptur af björgunarsveitinni Jökli en starfssvæði hennar er einkum svæði gamla Norður-Héraðs og hálendið. Sveitin hefur þó fært út kvíarnar og í dag búa flestir meðlimir sveitarinnar á Egilsstöðum og sveitunum þar í kring. Jöklar standa í ströngu þessa dagana við að koma yfir sig húsnæði í Fellabæ og eru að vinna að því verkefni í samstarfi við Kornþurrkun Austurlands. Félögin hyggjast deila húsnæðinu þrátt fyrir ólíka starfsemi en kornþurrkunin verður með tvö bil í húsinu en björgunarsveitin þrjú. Þar með munu þau tvöfalda grunnflötinn sem sveitin hefur til umráða miðað við núverandi aðstöðu á Hrólfsstöðum á Jökuldal.

Að sögn formanns björgunarsveitarinnar Jökuls, Adams Eiðs Óttarssonar, ganga framkvæmdir vel og er reiknað með að flutt verði inn í nýtt húsnæði sveitarinnar fyrir áramótin. Verkefni Jökuls eru fjölbreytt og kalla þar af leiðandi á margvíslegan tækjakost: „Okkar helsti tækjakostur eru tveir fullbreyttir fjallabílar. Öðrum þeirra erum við að klára að breyta þannig að hægt verði að flytja sjúkraflutningafólk og allan þeirra búnað með okkur á staði þar sem sjúkrabíll kemst ekki.“ Þetta segir Adam að sé mikilvægt í ljósi þess að sveitin sinni oft útköllum utan alfaraleiðar á hálendinu. „Þá eigum við einnig sexhjól, snjósleða og tvo slöngubáta og hlökkum til að komast í nýtt húsnæði þar sem verður nægt pláss fyrir allan þennan búnað og fólkið okkar þegar þarf að funda og halda æfingar,“ segir Adam.

Björgunarsveitin Jökull fagnaði 40 ára afmæli fyrr á þessu ári og Adam Eiður segir að til standi að fagna því með pompi og pragt þegar flutt verður inn í nýja húsið.

Múlaþing styður vel við björgunarsveitir sveitarfélagsins
Getum við bætt efni þessarar síðu?