Nemendur í 10. bekk Djúpavogsskóla hyggjast leggja land undir fót á laugardaginn og fara fótgangandi yfir Öxi. Með því vill unga fólkið meðal annars vekja athygli á ástandi vegarins og safna fyrir skólaferðalagi.
Krakkarnir leggja af stað klukkan 10:00 og ætla að gefa sér fjóra tíma í gönguna. Tilgangur fararinnar er þríþættur: í fyrsta lagi að safna áheitum fyrir skólaferðalag bekkjarins við lok 10. bekkjar, í öðru lagi vekja athygli á bágu ástandi vegarins og því að vinna við heilsársveg er ekki hafin og í þriðja lagi að vekja athygli á mikilvægi almenningssamgangna innan Múlaþings. Síðastnefndi liðurinn skiptir hópinn miklu máli því stór hluti nemenda frá Djúpavogi sækir nám í Menntaskólanum á Egilsstöðum og krakkarnir sem nú eru í 10. bekk munu flest bætast í þann hóp á næsta skólaári.
Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir er ein þeirra sem hefur aðstoðað hópinn við skipulagninguna. Hún segir að hugmyndin hafi kviknað í samtali foreldra þegar verið var að skipuleggja fjáraflanir síðastliðið haust: „Fólki þótti þetta frábær hugmynd og strax var vilji til þess að fara í verkið.“
Halldóra segir að viðbrögðin við framtakinu hafi verið mjög góð og áheitasöfnunin hafi farið vel af stað. „Við hvetjum sem flesta til að sýna stuðning í verki með því að heita á krakkana. Við skorum líka á íbúa í gamla Djúpavogshreppi og aðra velunnara Axarvegar að mæta við gömlu brúna yfir Berufjarðará klukkan 9:45 á laugardaginn og hvetja krakkana þegar þau ganga af stað. Þau sem vilja mega einnig labba með þeim og ráða að sjálfsögðu hversu langt er gengið.“
Sveitarstjórn Múlaþings bókaði um málið á fundi sínum 15. apríl síðastliðinn þar sem hún fagnaði framtaki og frumkvæði nemendanna og hvatti íbúa og aðra áhugasama til að taka þátt í göngunni en einnig er hægt að taka á móti hópnum þegar hann kemur í Skriðdalinn.
Þau sem vilja styrkja krakkana geta gert það með því að senda tölvupóst á doradrofn1409@gmail.com eða helgarg@gmail.com.