Í dag, 3. júní, kom ný sveitarstjórn Múlaþings saman á sínum fyrsta fundi eftir sveitarstjórnarkosningarnar í síðasta mánuði.
Á fundinum var kosið í embætti, stjórnir, ráð og nefndir sveitarfélagsins. Jónína Brynjólfsdóttir var endurkjörin forseti sveitarstjórnar. Berglind Harpa Svavarsdóttir verður 1. varaforseti og Ásrún Mjöll Stefánsdóttir 2. varaforseti sveitarstjórnar.
Skrifarar sveitarstjórnar verða Einar Freyr Guðmundsson og Hólmfríður Rut Einarsdóttir.
Berglind Harpa verður formaður byggðaráðs, Jónína verður formaður fjölskylduráðs og Þórhildur Katrín Stefánsdóttir verður formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Ásrún Mjöll Stefánsdóttir verður formaður heimastjórnar Borgarfjarðar, Þórey Birna Jónsdóttir formaður heimastjórnar Djúpavogs, Eiður Ragnarsson formaður heimastjórnar Fljótsdalshéraðs og Einar Freyr Guðmundsson formaður heimastjórnar Seyðisfjarðar.
Nánar má lesa um hvernig röðun í embætti, stjórnir, ráð og nefndir undir 1. lið fundagerðar fundarins.
Dagmar heldur áfram sem sveitarstjóri
Á fundinum var einnig samþykktur nýr ráðningarsamningur við Dagmar Ýr Stefánsdóttur sveitarstjóra sem mun því áfram gegna starfi sveitarstjóra Múlaþings.
Að fundi loknum sagði Berglind Harpa Svavarsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins:
„Ný sveitarstjórn mætti sterk og samstillt til leiks í dag. Það er mikilvægt því framundan eru stór og mikilvæg verkefni, ekki síst áframhaldandi barátta fyrir nauðsynlegum samgönguframkvæmdum í Múlaþingi og á Austurlandi öllu. Ég hlakka mikið til samstarfsins við þennan öfluga hóp á komandi kjörtímabili.“
Samgöngumál til umræðu
Á fundinum samþykkti sveitarstjórn jafnframt bókun þar sem lýst var yfir vonbrigðum með nefndarálit meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um samgönguáætlun 2026–2040.
Í bókuninni er meðal annars gagnrýnt að ekki sé gengið nægilega langt í uppbyggingu samgangna á Austurlandi, sérstaklega hvað varðar Fjarðarheiðargöng og framkvæmdir á Axarvegi.
Nánar má lesa um fundinn í fundargerðinni en þá er einnig hægt að horfa á hann á Youtube-síðu sveitarfélagsins.