Fara í efni

Opið fyrir umsóknir í Jólasjóðinn 2026

19.11.2026 Fréttir

Eins og fyrri ár geta þau sem búa við þröngan kost sótt um styrk í Jólasjóðinn. 

Að baki sjóðnum standa Rauði krossinn, Þjóðkirkjan, AFL starfsgreinafélag, Lionsklúbburinn Múli og Lionsklúbburinn á Seyðisfirði og er hann starfræktur í samvinnu við félagsþjónustu Múlaþings. Markmið sjóðsins er að létta undir með þeim sem mest þurfa á því að halda. 

Þau sem vilja sækja um úthlutun úr sjóðnum sækja um með því að smella hér: Umsókn um styrk úr Jólasjóði, á heimasíðum þeirra sem standa að sjóðnum eða með því að hafa samband við félagsþjónustu Múlaþings með því að hringja í síma 4 700 700 eða með tölvupósti á netfangið mulathing@mulathing.is.

Fyrir þau sem þurfa frekari upplýsingar er einnig bent á að hafa samband við félagsþjónustu Múlaþings.

Þeim félagasamtökum, einstaklingum og fyrirtækjum sem styrkt hafa sjóðinn er þakkað kærlega fyrir sitt framlag. 

Þau sem vilja styrkja sjóðinn er bent á Facebooksíðu Múlasýsludeildar Rauða krossins fyrir nánari upplýsingar. 

Opið fyrir umsóknir í Jólasjóðinn 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?