Fara í efni

Ormsteiti haldið um helgina

20.08.2026 Fréttir

Hið árlega Ormsteiti fer fram á Egilsstöðum og Fellabæ um helgina. Hátíðin var fyrst haldin árið 1993 og hefur verið haldin árlega í einhverri mynd síðan.

Hátíðin hefst í dag með Vök Baths hlaupinu en þetta er í annað sinn sem hlaupið er haldið í tengslum við Ormsteiti.

Á föstudaginn verður sett upp tívolí í Tjarnargarðinum sem verður opið frá kl. 14:00 til 18:00. Síðar um daginn á Fellabær sviðið en þar verður boðið upp á hina árlegu Fellasúpu, BMX brós munu halda námskeið og sýningu, Fjárhúsin bjóða heim og fleira.

Á laugardaginn verður mikið húllumhæ í Tjarnargarðinum. Ormahlaupið er þar fyrst á dagskrá kl. 11:30 en þar gefst hressum krökkum á öllum aldri tækifæri til að spretta úr spori. Sjálfur Jón Jónsson mun svo stíga á svið kl. 12:00 og tívolíð verður opið milli 12:00 og 18:00.

Á laugardag og sunnudag verður jafnframt opinn markaður í Samfélagssmiðjunni, Kaupvangi 31 (gamla Blómabæ) þar sem handverksfólk og framleiðendur selja vörur sínar. Þá verða viðburðir og tilboð á vegum þjónustuaðila á svæðinu.

Ormsteiti haldið um helgina
Getum við bætt efni þessarar síðu?