Vegna lagfæringa á götuskáp verður rafmagnslaust í hluta Fellabæjar frá klukkan 16:00 til 19:00 mánudaginn 23. nóvember.
Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana.
Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000. Kort af svæðinu má sjá á rarik.is/rof.