Byggðarráð Múlaþings auglýsir seinni úthlutun menningarstyrkja árið 2026. Umsóknarfrestur um styrki er til og með 31. ágúst 2026.
Byggðarráð Múlaþings veitir menningarstyrki til einstaklinga, hópa, félagssamtaka, fyrirtækja og stofnana til lista- og menningarverkefna. Umsækjendur skulu tengjast Múlaþingi með búsetu, með því að viðburðurinn fari fram í Múlaþingi eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Múlaþings.
Sótt er um styrk með rafrænum hætti á Mínum síðum Múlaþings. Afgreiðsla umsókna liggur fyrir í lok september.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun menningarstyrkja Múlaþings á heimasíðu sveitarfélagsins.
Til úthlutunar í seinni úthlutun menningarstyrkja árið 2026 eru 2.100.000 kr.
Styrkir eru að upphæð 50.000 - 300.000 kr. en geta ekki orðið hærri en sem nemur 50% af heildarkostnaði við verkefnið.
Byggðarráð Múlaþings úthlutar menningarstyrkjum tvisvar á ári, næsta úthlutun verður auglýst í nóvember og fer fram í janúar 2027.
Upplýsingar veitir Elsa Guðný Björgvinsdóttir, deildarstjóri menningarmála, elsa.bjorgvinsdottir@mulathing.is / 4 700 700.