Kennarasamband Íslands hefur verið á ferð um landið undanfarin misseri. Fyrr í mánuðinum kom forystufólk sambandsins við á Austurlandi og fundaði með sveitarstjórnarfulltrúum sem og fulltrúum fræðslumála. Þar að auki voru haldnir fundir með kennurum og skólastjórnendum.
Á fundunum kynnti KÍ átak sambandsins í skólamálum sem gengur undir heitinu „Blásum byr í seglin“. Markmiðið með átakinu er að eiga í samfélagslegu samtali um framtíð skólakerfisins á grundvelli þekkingar, reynslu fagfólks og langtímasýnar.
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, lýsti ánægju fulltrúa KÍ með fundina: „Á fundunum kom sannarlega í ljós hversu öflugt skólastarf er að finna í þessum sveitarfélögum, metnaður til að gera enn betur og alger samhljómur um mikilvægi framtíðarsamtals á landsvísu um skólamál. Það var líka mjög lærdómsríkt að fræðast um stöðuna í framhaldsskólunum á Austurlandi sem auk þess að vera öflugar skólastofnanir eru líka lífæðar ungs fólks í samfélögunum.“
Fundirnir á Austurlandi voru liður í samtali KÍ við samfélagið um allt land og gáfu færi á að ræða bæði öflugt skólastarf á svæðinu og framtíð skólakerfisins í heild.