Snjómokstur er í fullum gangi og fer fram samkvæmt áætlun í þéttbýli Múlaþings. Þar sem mjög þungfært er víða mun snjómokstur ganga hægt fyrir sig. Einnig eru það vinsamleg tilmæli til íbúa að þeir leggi ekki bílum sínum, kerrum eða öðru þannig að það tefji fyrir snjómokstri.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og fara varlega á meðan unnið er að hreinsun.
Áhersla er lögð á snjómokstur á leiðum í forgangi 1 (rauðar götur) og þegar þeim er lokið verður hafinn mokstur á leiðum í forgangi 2 (gular götur). Sjá kort yfir forgangsröðun vetrarþjónustu í þéttbýli (Samgöngur - Snjómokstur).
Tilhögun snjómoksturs í Múlaþingi er eftirfarandi:
- Leiðir í forgangi 1 (rauðar leiðir) – Aðalgötur, strætóleiðir og stofngötur.
- Leiðir í forgangi 2 (gular leiðir) – Aðrar tengibrautir, fáfarnari safngötur og húsagötur.
- Appelsínugular leiðir eru alfarið þjónustaðar af Vegagerðinni.
Íbúar eru beðnir um að sýna verktökum sem sinna snjómokstri tillitssemi og þolinmæði meðan sú vinna stendur yfir.
Snjóblásara- og skóflunotendum sem moka stéttar bæjanna og aðstoða nágranna er þakkað þeirra framlag.
Fyrir frekari upplýsingar um tilhögun snjómoksturs og hálkueyðingar í Múlaþingi er bent á viðmiðunarreglur um vetrarþjónustu sem finna má á heimasíðunni.
Kort sem sýna þjónustuflokka gatna í hverjum byggðakjarna má svo finna hér.
Við minnum á að hægt er að koma ábendingum varðandi snjómokstur á framfæri í gegnum ábendingagátt Múlaþings.