Fjáreigendur í Múlaþingi geta sótt um styrk fyrir bóluefni gegn garnaveiki fyrir allt að 120 lömb á árinu 2026.
Til að sækja um styrkinn þarf að senda rafrænan reikning fyrir bóluefninu á Múlaþing. Reikningurinn skal vera alfarið án virðisaukaskatts og berast fyrir lok árs 2026.
Með reikningi þarf að fylgja afrit af reikningi frá dýralækni fyrir bólusetningunni.
Hægt er að senda rafræna reikninga á Múlaþing í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins.
Múlaþing áréttar mikilvægi þess að búfjáreigendur láti bólusetja fyrir garnaveiki. Frekari upplýsingar um smitsjúkdóminn má nálgast á heimasíðu Matvælastofnunar.