Fara í efni

Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026 - kjörstaðir og kjördeildir á kjördag

27.08.2026 Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður Kosningar Auglýsingar

Við þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB þann 29. ágúst 2026 verða kjörstaðir í Múlaþingi opnir sem hér segir:

  • Borgarfjörður eystri: Grunnskólinn á Borgarfirði. Frá klukkan 09:00 til klukkan 17:00.
  • Djúpivogur: Tryggvabúð Djúpavogi. Frá klukkan 10:00 til klukkan 18:00.
  • Fljótsdalshérað: Menntaskólinn á Egilsstöðum. Frá klukkan 09:00 til klukkan 22:00.
  • Seyðisfjörður: Íþróttamiðstöðin á Seyðisfirði. Frá klukkan 10:00 til klukkan 20:00.

Skipting kjördeilda á Fljótsdalshéraði verður eftirfarandi: Í kjördeild nr. 1 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur hverra nöfn byrja á bókstafnum A til og með bókstafnum M. Í kjördeild nr. 2 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur hverra nöfn byrja á bókstafnum N til Ö, íbúar í Fellabæ, Eiðum og Hallormsstað, ásamt íbúum í dreifbýli á Fljótsdalshéraði.

Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar liggur frammi almenningi til sýnis á opnunartíma skrifstofa sveitarfélagsins á Egilsstöðum, Borgarfirði eystri, Djúpavogi og Seyðisfirði til föstudagsins 28. ágúst 2026.

Á kjördag, meðan atkvæðagreiðsla stendur yfir, mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur sitt í Menntaskólanum á Egilsstöðum.

Talning atkvæða fyrir kjördæmið í heild fer fram á Akureyri á vegum yfirkjörstjórnar Norðausturkjördæmis.

Upplýsingar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar má finna á vefsíðu sýslumanns.


Yfirkjörstjórn Múlaþings

Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026 - kjörstaðir og kjördeildir á kjördag
Getum við bætt efni þessarar síðu?