Fara í efni

Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026, upplýsingar um kjörstaði og utankjörfundaratkvæðagreiðslu

13.08.2026 Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður Kosningar Auglýsingar

Við þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB þann 29. ágúst 2026 verður fyrirkomulag kjörfundar, kjörskrár og atkvæðagreiðslu utan kjörfundar í Múlaþingi sem hér segir:

I. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar

Yfirkjörstjórn vekur athygli kjósenda á eftirfarandi fyrirkomulagi atkvæðagreiðslu utan kjörfundar:

1. Hjá sýslumanni (frá 27. júlí 2026):

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar stendur yfir á skrifstofum sýslumanns á Egilsstöðum, Lyngási 15 og Seyðisfirði, Bjólfsgötu 7

  • Opnunartími: Mánudaga-fimmtudaga kl. 09:00-15:00, föstudaga kl. 09:00-14:00.
  • Aukinn opnunartími á Egilsstöðum frá og með 17. ágúst: virka daga kl. 09.00-17:00. Á kjördag 10:00-14:00.

2. Á skrifstofum sveitarfélagsins (13.-28. ágúst 2026):

Einnig er hægt að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum sveitarfélagsins á Borgarfirði, Fjarðarborg 2. hæð og Djúpavogi, Geysir, Bakka 1:

  • Opnunartími: Mánudaga-fimmtudaga kl. 10:00-14:00, föstudaga kl. 10:00-12:00.

Kjósendur eru minntir á að framvísa gildum persónuskilríkjum með mynd.

II. Kjörstaðir og kjördeildir á kjördag 29. ágúst 2026

Kjörstaðir í Múlaþingi verða opnir sem hér segir:

  • Borgarfjörður eystri: Grunnskólinn á Borgarfirði. Frá klukkan 09:00 til klukkan 17:00.
  • Djúpivogur: Tryggvabúð Djúpavogi. Frá klukkan 10:00 til klukkan 18:00.
  • Fljótsdalshérað: Menntaskólinn á Egilsstöðum. Frá klukkan 09:00 til klukkan 22:00.
  • Seyðisfjörður: Íþróttamiðstöðin á Seyðisfirði. Frá klukkan 10:00 til klukkan 20:00.

Skipting kjördeilda á Fljótsdalshéraði verður eftirfarandi: Í kjördeild nr. 1 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur hverra nöfn byrja á bókstafnum A til og með bókstafnum M. Í kjördeild nr. 2 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur hverra nöfn byrja á bókstafnum N til Ö, íbúar í Fellabæ, Eiðum og Hallormsstað, ásamt íbúum í dreifbýli á Fljótsdalshéraði.

Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar liggur frammi almenningi til sýnis á opnunartíma skrifstofa sveitarfélagsins á Egilsstöðum, Borgarfirði eystri, Djúpavogi og Seyðisfirði til föstudagsins 28. ágúst 2026.

Á kjördag, meðan atkvæðagreiðsla stendur yfir, mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur sitt í Menntaskólanum á Egilsstöðum.

Talning atkvæða fyrir kjördæmið í heild fer fram á Akureyri á vegum yfirkjörstjórnar Norðausturkjördæmis.

Yfirkjörstjórn Múlaþings

Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026, upplýsingar um kjörstaði og utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Getum við bætt efni þessarar síðu?