Byggðaráð Múlaþings úthlutaði nýverið menningarstyrkjum til 13 verkefna. Um var að ræða seinni úthlutun menningarstyrkja á árinu 2026 en fyrri og stærri úthlutun fór fram í janúar. Alls bárust 37 umsóknir að þessu sinni sem er rúmlega 50% fjölgun frá seinni úthlutun síðasta árs. 2,2 milljónir voru til úthlutunar að þessu sinni en sótt var um rúmlega 9,6 milljónir.
Fjöldi umsókna og eðli þeirra bera vitni um blómlegt menningarlíf í Múlaþingi og þann drifkraft sem þar ríkir á meðal skapandi fólks. Verkefnin sem hlutu styrk að þessu sinni voru afar fjölbreytt en á meðal þeirra voru plötuútgáfa, tónleikar, myndlistar- og ljósmyndasýningar, dans- og myndlistarnámskeið fyrir börn, varðveisla menningararfs og fleira.
Umsækjendum er hér með þakkað fyrir umsóknirnar og óskað velgengni með verkefnin.
Umsóknarferli fyrir næstu úthlutun menningarstyrkja Múlaþings verður auglýst um miðjan nóvember.
Verkefnin sem hlutu styrki að þessu sinni voru eftirfarandi:
Ovium: Hljóðversplata með hljómsveitinni Ovium. Úthlutun: 150.000 kr.
Bryndís Björt Hilmarsdóttir: Dansnámskeið fyrir börn og ungmenni í Múlaþingi. Úthlutun: 200.000 kr.
Elísabet Maren Guðjónsdóttir: Auðlindir Austurlands. Verkefni sem snýst um varðveislu þess menningararfs sem felst í sútun og sjálfbærri nýtingu hreindýraskinna svo og þróun og hönnun afurða úr þeim. Úthlutun: 200.000 kr.
Hector Nicolas Gomes: Þar sem þögnin býr. Píanótónleikar sem bjóða upp á kyrrð, íhugun og djúpa hlustun, innblásnir af vetrum Austurlands. Úthlutun: 200.000 kr.
Ína Berglind Guðmundsdóttir: Útsetning, upptaka og útgáfa á breiðskífu sem inniheldur átta frumsamin lög og texta á íslensku. Úthlutun: 150.000 kr.
Hollvinasamtök Gömlu kirkjunnar á Djúpavogi: Stjörnuhvolf Gömlu kirkjunnar. Sóknarbörn gömlu kirkjunnar á Djúpavogi muna öll eftir stjörnunum sem prýddu loftið yfir altarinu. Hollvinasamtökin bjóða öllum að koma og móta sína eigin stjörnu sem verða hluti af stjörnuhvolfi Gömlu kirkjunnar við lok endurbóta. Úthlutun: 110.000 kr.
Juan Jose Ivaldi Zaldivar: Ég er someone. Ljósmyndasýning með um 40 andlitsmyndum og persónulegum sögum fólks af erlendum uppruna sem býr á Austurlandi. Úthlutun: 200.000 kr.
Klaudia Karolina Kaczmarek: Póstkort frá Seyðisfirði. Myndlistarverkefni með það að markmiði að skrásetja fólkið, húsin, staðina og hversdagslegu smáatriðin sem gera Seyðisfjörð sérstakan. Úthlutun: 150.000 kr.
Klaudia Karolina Kaczmarek: Vættir og fjör. Þjóðsögur og sagnir sem tengjast Seyðisfirði og Austurlandi verða nýttar sem innblástur við gerð handsmíðaðra strengjabrúða. Markmið verkefnisins er að gefa íslenskri þjóðtrú nýtt sjónrænt form og skapa tengingu milli hefðbundinnar sagnamenningar, samtímalistar og menningarlegrar sjálfsmyndar Austurlands. Úthlutun: 190.000 kr.
Mark Peter Andrew Jackson: Gallerí Lokað. Listamannarekið gallerí og vettvangur fyrir verkefni með áherslu á listrænt frelsi, tilraunir og persónulega sýn fremur en markaðsleg gildi. Úthlutun: 200.000 kr.
Minjasafn Austurlands: Kjarvalshvammur: Forvarsla minja um veru Kjarvals í sumarhúsi hans í Hjaltastaðaþinghá. Úthlutun: 100.000 kr.
Tinna Kristbjörg Halldórsdóttir: Flæði & Frelsi. Myndlistarnámskeið fyrir ungmenni í Fjárhúsunum í Fellabæ. Úthlutun: 100.000 kr.
Þórhildur Tinna Sigurðardóttir: Dreymendur og draumgjafar - leitandi list á óvissutímum. Haustsýning Skaftfells 2026. Úthlutun: 250.000 kr.