Fara í efni

Tímamót hjá Héraðsprenti

01.10.2026 Fréttir Egilsstaðir

Prentsmiðjan Héraðsprent á Egilsstöðum stendur á tímamótum um þessar mundir en þau hjónin Skarphéðinn Þráinsson og Gunnhildur Ingvarsdóttir, sem hafa staðið þar vaktina í 54 ár, hyggjast setjast í helgan stein. Prentmet Oddi mun taka yfir reksturinn.

Héraðsprent var stofnað af þeim hjónum árið 1972 og var fyrst um sinn staðsett í bílskúr að Lagarási 8 á Egilsstöðum. Fyrirtækið óx jafnt og þétt í gegnum árin og hefur síðustu 25 ár starfað í hjarta Egilsstaðabæjar að Miðvangi 1 og þjónustað fólk og fyrirtæki um allt land.

Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri leit við hjá þeim hjónum í Héraðsprenti í tilefni tímamótanna og færði þeim þakklætisvott fyrir þjónustu þeirra við samfélagið í Múlaþingi og á öllu Austurlandi í gegnum árin. „Héraðsprent hefur alla tíð veitt mikla og góða þjónustu og náð að halda í við þær hröðu tækniframfarir sem hafa orðið í þessum geira. Það er mjög mikilvægt fyrir samfélagið hér að geta gengið að sérhæfðri þjónustu eins og þessari í heimabyggð og vonandi verður svo áfram“ segir Dagmar Ýr.

Mynd: Skarphéðinn Þráinsson, Gunnhildur Ingvarsdóttir og Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri.
Mynd: Skarphéðinn Þráinsson, Gunnhildur Ingvarsdóttir og Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri.
Getum við bætt efni þessarar síðu?