Fara í efni

Trjágróður út fyrir lóðarmörk

28.09.2026 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Er gróðurinn þinn til vandræða fyrir aðra? Nokkuð er um að trjágróður vaxi út fyrir lóðarmörk í Múlaþingi sem getur valdið vegfarendum óþægindum og jafnvel hættu.

Lóðarhafar eru hvattir til að ganga úr skugga um að gróður á lóðum þeirra nái ekki út fyrir lóðarmörk. Nokkrir lóðarhafar hafa þegar fengið sent bréf í stafrænt pósthólf á island.is þar sem þeim er veittur frestur til að bæta úr.

Af hverju skiptir þetta máli?

Trjágróður sem vex út fyrir lóðarmörk getur hindrað vegfarendur, þrengt gangstéttir, skyggt á umferð á gatnamótum, umferðarmerki og götulýsingu og valdið vandræðum við snjóhreinsun, sorphirðu og aðkomu neyðarbifreiða.

Lóðarhafar eru hvattir til að tryggja að:

  • gangandi og hjólandi eigi greiða leið um gangstéttir og göngustíga,
  • umferðarmerki, götunöfn og götulýsing séu sýnileg,
  • gróður við gatnamót skyggi ekki á umferð,
  • gróður yfir stígum og gangstéttum sé að lágmarki 2,8 metrar á hæð þar sem vélsópar og snjóruðningstæki fara um,
  • gróður yfir akbrautum sé að lágmarki 4,2 metrar á hæð þar sem sorphirðubílar, slökkvilið og sjúkrabílar þurfa að komast um.

Hvað segja reglurnar?

Samkvæmt byggingarreglugerð ber lóðarhöfum að halda trjám og runnum innan lóðarmarka. Sinni lóðarhafi því ekki er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta gróðurs sem veldur truflun eða hættu, á kostnað lóðarhafa og að undangenginni aðvörun.

Öll viljum við geta komist leiðar okkar um gangstéttir, göngustíga og götur bæjarins án þess verða fyrir óþægindum vegna trjágreina sem vaxa út úr görðum, hvort sem við erum gangandi, hlaupandi, hjólandi eða akandi.

Óskað er eftir góðri samvinnu við íbúa um að tryggja vegfarendum greiða leið og skapa umhverfi sem dregur úr líkum á slysum.

Ábendingum um trjágróður sem nær út fyrir lóðarmörk má koma á framfæri í gegnum ábendingagátt Múlaþings.

Frekari upplýsingar veitir Jón Kristófer Arnarson garðyrkjustjóri í gegnum jon.arnarson@mulathing.is eða síma 4 700 700.

Mynd úr myndasafni
Mynd úr myndasafni
Getum við bætt efni þessarar síðu?