Vegna bilunar í Outlook-tölvupóstkerfinu verða truflanir á starfsemi Múlaþings í dag, föstudaginn 13. nóvember. Á meðan bilunin varir getur verið að tölvupóstar til sveitarfélagsins og starfsfólks þess berist ekki eða seinki og svör geta því tafist.
Unnið er að lausn málsins og vonast er til að kerfið komist í lag sem fyrst.
Þeim sem þurfa að ná sambandi við sveitarfélagið er bent á að hringja í þjónustuver Múlaþings í síma 4 700 700 eða koma á skrifstofur sveitarfélagsins. Ef þú sendir tölvupóst í dag og hefur ekki fengið svar er gott að senda hann aftur þegar kerfið er komið í lag.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.