Fara í efni

Vel heppnuð frumsýning í Sláturhúsinu

16.11.2026 Fréttir Egilsstaðir

Húsfyllir var í Sláturhúsinu menningarmiðstöð á Egilsstöðum þegar nýi íslenski fjölskyldusöngleikurinn Vinir Egils Skalla var frumsýndur þar í gær.

Söngleikurinn, sem er eftir Karl Ágúst Úlfsson, byggir á Egils sögu Skallagrímssonar og fjallar um krakka sem fyrir töfra komast í kynni við Egil Skallagrímsson og setja þar með Egilssögu á hvolf með ófyrirséðum afleiðingum. Verkið er líka óður til bóka og bóklesturs. 

Sláturhúsið framleiðir sýninguna í samstarfi við leikhópinn Undir og stórmerki en hópurinn sem kemur að sýningunni samanstendur af listafólki úr heimabyggð og af höfuðborgarsvæðinu. 

Aðstandendum sýningarinnar er óskað innilega til hamingju með frumsýninguna. Níu sýningar eru fram undan og hægt er að kaupa miða á tix.is.

 

Aðstanendur sýningarinnar:

Leikarar: Ólöf Elsa Ásgrímsdóttir, Ísak Ari Þorgeirsson, Orri Huginn Ágústsson, Björk Guðmundsdóttir, Vilberg Andri Pálsson, Árni Friðriksson, Andrea Katrín Guðmundsdóttir, Ágústa Sigurrós Eyjólfsdóttir, Øystein Magnús Gjerde, Tessa Rivarola

Handrit: Karl Ágúst Úlfsson

Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir

Leikmynda-og búningahönnun: Þórunn María Jónsdóttir

Ljósahönnuður: Ásta Jónína Arnardóttir

Lagahöfundur: Eyvindur Karlsson

Hljómsveitarsjórn, útsetning og hljóðmynd: Øystein Magnús Gjerde

Hljómsveit: Øystein Magnús Gjerde, Andrea Katrín Guðmundsdóttir, Ágústa Sigurrós Eyjólfsdóttir, Árni Friðriksson og Vilberg Andri Pálsson

Leikgervi: Þórunn María Jónsdóttir og Aldís Davidsdóttir

Leikmunir: Aldís Davidsdóttir og Katarzyna Kazimiera Strojnowska

Leikmyndasmiður: Óttar Brjánn Eyþórsson

Framleiðandi: Ragnhildur Ásvaldsdóttir og Sláturhúsið í samstarfi við Undur og Stórmerki

Ljósmyndir: Juanjo Ivaldi. 

Sýningin er framleidd með stuðningi frá Sviðslistasjóði, Launasjóði listamanna, Múlaþingi , Alcoa Fjarðarál og Landsvirkjun

Vel heppnuð frumsýning í Sláturhúsinu
Getum við bætt efni þessarar síðu?