Nýlega kom út bæklingurinn Verum viðbúin – öryggi og velferð samfélagsins er sameiginlegt verkefni okkar allra, þar sem finna má gagnlegar upplýsingar og leiðbeiningar um hvernig hægt er að undirbúa sig fyrir alvarlega atburði eða truflanir á grunnþjónustu.
Í bæklingnum er meðal annars fjallað um mikilvægi þess að eiga nauðsynlegar birgðir af mat og vatni, undirbúa sig fyrir rafmagnsleysi og rof á fjarskiptum og gera einfalda viðbragðsáætlun fyrir heimilið. Einnig er þar að finna gátlista yfir nauðsynjar og góð ráð um hvernig best sé að bregðast við þegar neyðarástand skapast.
Íbúar eru hvattir til að kynna sér bæklinginn og huga að eigin viðbúnaði. Með góðum undirbúningi er betur hægt að takast á við óvæntar aðstæður, tryggja öryggi sitt og sinna nánustu og um leið stuðla að auknu áfallaþoli samfélagsins.