Fara í efni

Við biðjumst velvirðingar á röngum upplýsingum

01.11.2023 Fréttir

Við auglýsingar á stað- og tímasetningu ormahreinsun katta voru gefnar upp rangar upplýsingar. 
Auglýst var að ormahreinsunin færi fram í áhaldahúsinu á Egilsstöðum en raunin var að hún fór fram í Blómabæ. 

Einnig urðu mistök á tímasetningu en í auglýsingu stóð að hreinsunin færi fram á milli 17:00 - 19:30 en rétt tímasetning var 17:00 - 18:30 

 

Við biðjumst innilegrar velvirðingar á óþægindum sem þetta olli og bendum á að kattaeigendum er velkomið að mæta á dýralæknastofuna á Egilsstöðum til Dionu dýralæknis að Bjarkarhlíð 2 - gengið inn Tjarnarásmegin á neðri hæð. Hægt er að hafa samband við dýralæknastofuna í síma 892 3160 eða senda á ddvet@simnet.is

 

Uppfærðar upplýsingar varðandi ormahreinun hunda má nálgast hér.

Við biðjumst velvirðingar á röngum upplýsingum
Getum við bætt efni þessarar síðu?