Nú gengur yfir landið vonskuveður með hvassviðri og mikilli úrkomu. Úrkoman veldur því að vatn hækkar í ám og lækjum með tilheyrandi hættu á flóðum og samgöngutruflunum. Við þessar aðstæður eru auknar líkur á aurskriðum og grjóthruni.
Gefnar hafa verið út veður- og skriðuviðvaranir á Austurlandi vegna þessa. Gildistími þeirra er mismunandi eftir svæðum og eðli viðvarananna. Miðað við gildandi viðvaranir er gert ráð fyrir að sú síðasta falli úr gildil klukkan 14:00 á morgun, föstudag.
Hægt er að kynna sér viðvaranir og veður í frétt Austurfréttar, á vef Veðurstofunnar og hjá Vegagerðinni.
Vegna hvassviðris eru ökumenn hvattir til að gæta sérstakrar varúðar, einkum þeir sem aka ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Þá skal sýna aðgát á vegum og sér í lagi undir bröttum hlíðum.
Þau sem verða vör við skriður eða grjóthrun eru hvött til að tilkynna slíkt til Veðurstofunnar annaðhvort á netfangið skriduvakt@vedur.is eða í gegnum rafrænt eyðublað.
Ekki er talin hætta í byggð og er staðan á hættusvæðum vöktuð og stöðugt endurmetin.