Fara í efni

Tilmæli til leigjanda Múlaþings

Tilmælin á pdf formi

Mælst er til að leigjandi

  • Kynni sér og fylgi Reglum Múlaþings vegna leiguíbúða sem vistaðar eru heimsíðu Múlaþings.
  • Negli eða bori í veggi eins lítið og unnt er. Notast skal sem mest við vegglímborða eða aðrar lausnir sem eru viðurkenndar og valda sem minnstum skemmdum.
  • Geymi aukalykil á vísum stað út í bæ, verði hann fyrir því óláni að læsa sig úti. Þurfi að gera aukalykil eða skipta um læsingu skal það greitt af leigjanda og afhent við leigulok.
  • Loftræsti húsnæðið vel, með því að opna glugga reglulega svo lofti vel um öll rýmin.
  • Haldi húsnæðinu hreinu og þrifalegu sem og sameign ef við á.
  • Þrífi öll niðurföll, vatnslása og síur í vöskum og sturtu.
  • Passi upp á að rakastig í húsnæðinu sé innan eðlilegra marka, sjá rakamælir í íbúð, 40%-70%.
  • Sinni eðlilegu minniháttar viðhaldi eins og t.d.:
    • skipta um ljósaperur og batterí í reykskynjurum ef við á
    • kanna virkni reykskynjara og gildistíma slökkvitækis og tilkynni til Fasteignasviðs Múlaþings ef ábótavant.
    • Slá lóð og hirða garð, sé hann til staðar og leigjandi með einkanot á garðinum.
  • Sé með virka heimilistryggingu.

Óheimilt er að

  • Reykja innandyra.
  • Fjarlægja fastan fylgibúnað eða bæta við slíkum nema með leyfi Fasteignasviðs Múlaþings. Dæmi um slíkan fylgibúnað er t.d. eldavélar og blöndunartæki.
  • Mála veggi, innréttingar, hurðar eða annað sem fylgir húsnæðinu. Slíkt viðhald er á ábyrgð Fasteignasviðs Múlaþings.
  • Gera hverskonar breytingar á húsnæði eða lóð án sérstaks leyfis þar um frá Fasteignasviði Múlaþings.

Verði tjón á húsnæðinu skal leigjandi tafarlaust tilkynna það til tryggingarfélagsins Vís í síma 560 5000 og senda greinagóðar upplýsingar um málið á netfangið tjon@mulathing.is

Fasteignasvið Múlaþings,
netfang:
eignir@mulathing.is  og sími 4700700

Síðast uppfært 13. apríl 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?