Fara í efni

Fjarðarheiðargöng, aðalskipulagsbreyting á Seyðisfirði

07.03.2023

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti á fundi 8. febrúar 2023 að tillaga um breytingu á Aðalskipulagi Seyðisfjarðarkaupstaðar 2010-2030 vegna Fjarðarheiðarganga yrði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast tillöguna á skrifstofum sveitarfélagsins og hér neðar í fréttinni.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skilað til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilsstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 21. apríl 2023.

Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

 

Skipulagsgögn:

Breyting á Aðalskipulagi Seyðisfjarðarkaupstaðar 2010-2030, greinargerð, dags. 27. janúar 2023

Breyting á Aðalskipulagi Seyðisfjarðarkaupstaðar 2010-2030, þéttbýlisuppdráttur, dags. 27. janúar 2023

Breyting á Aðalskipulagi Seyðisfjarðarkaupstaðar 2010-2030, sveitarfélagsuppdráttur, dags. 27. janúar 2023

Getum við bætt efni þessarar síðu?