Fara í efni

Skaganáma, aðalskipulagsbreyting

24.01.2023

Múlaþing kynnir skipulags- og matslýsingu og vinnslutillögu fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Seyðisfjarðarkaupstaðar 2010-2030 vegna stækkunar Skaganámu í samræmi við 1. og 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felur í sér að stækka Skaganámu og heimila aukna efnistöku fyrir allt að 350.000 m3. Hægt er að nálgast skipulags- og matslýsingu fyrirhugaðra breytinga auk vinnslutillögu þeirra á skrifstofum sveitarfélagsins og hér neðar í fréttinni.

Almenningi er gefinn kostur á að senda inn ábendingar og/eða athugasemdir til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 16. febrúar 2023.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Gögn til kynningar:

Skipulags- og matslýsing

Vinnslutillaga, greinargerð

Vinnslutillaga, uppdráttur

Getum við bætt efni þessarar síðu?