Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

184. fundur 24. mars 2026 kl. 08:30 - 10:43 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Vilhjálmur Jónsson varaformaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Hildur Þórisdóttir aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Þröstur Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
Í upphafi fundar óskaði formaður byggðaráðs eftir því að nýtt mál yrði sett á dagskrá fundarins undir lið 10.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Hlynur Jónsson, sviðsstjóri stjórnsýslu, vék af fundi undir lið 5 og ritaði sveitarstjóri fundargerð undir þeim lið.

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri, sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða fjármál og rekstur sveitarfélagsins.

2.Uppbygging miðbæjar á Egilsstöðum

Málsnúmer 202308120Vakta málsnúmer

Í kjölfar vinnu vegna uppbyggingar miðbæjar á Egilsstöðum er tímabært að halda opinn fund með íbúum um stöðu þessarar vinnu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að sveitarstjóri auglýsi fund með íbúum og hagaðilum um uppbyggingu á miðbæ Egilsstaða. Fundurinn verði haldinn í apríl 2026.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

3.Miðdalur II í Mosfellssveit

Málsnúmer 202603174Vakta málsnúmer

Fyrir liggur áhugi um kaup á landinu Miðdal II í Mosfellssveit, fasteignanúmer 208-2191, en sveitarfélagið á hlut í landinu.
Í vinnslu.

4.Framlenging samnings um rekstur Herðubreiðar 2026

Málsnúmer 202603096Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað frá verkefnastjóra atvinnumála, dagsett 12. mars 2026, um framlengingu samnings um rekstur Herðubreiðar á Seyðisfirði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að framlengja samning við rekstraraðila Herðubreiðar um eitt ár í samræmi við ákvæði gildandi samnings.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Beiðni um styrk frá Múlaþingi fyrir hátíðina Flug&Fákar

Málsnúmer 202603151Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni til byggðaráðs frá Flugklúbbi Egilsstaða, dagsett 16. mars 2026, um reglulegan styrk til hátíðarinnar Flugs og fáka sem næst verður haldin á Egilsstaðaflugvelli 26. júlí 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að styrkja hátíðina Flug og fáka, sem haldin verður 26. júlí 2026 á Egilsstaðaflugvelli, um kr. 600.000 af lið 13890.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Skýrsla um stjórnsýsluskoðun 2025

Málsnúmer 202602152Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar árleg skýrsla KPMG um skoðun á stjórnsýslu Múlaþings, dags. 18. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

7.Almenningssamgöngur á Austurlandi - landsbyggðarvagnar

Málsnúmer 202603132Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð frá samráðsfundi Vegagerðarinnar með hagaðilum á Austurlandi um landsbyggðarvagna frá 11. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

8.Fundargerðir stjórnar HEF 2026

Málsnúmer 202601113Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar fundargerðir stjórnar HEF veitna nr. 362 frá 3. mars 2026 og 363 frá 10. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

9.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202601171Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 10. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

10.Samráðsgátt. Umsagnarbeiðni um breytingu á reglugerð um framkvæmd raforkulaga.

Málsnúmer 202603199Vakta málsnúmer

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett drög að breytingu á reglugerð um framkvæmd raforkulaga til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda en frestur til þess að veita umsögn um breytinguna er til 3. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að senda inn umsögn um reglugerðarbreytinguna í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Fundi slitið - kl. 10:43.

Getum við bætt efni þessarar síðu?