Fara í efni

Almenningssamgöngur á Austurlandi - landsbyggðarvagnar

Málsnúmer 202603132

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 178. fundur - 23.03.2026

Framlögð til kynningar fundargerð samráðsfundar Vegagerðarinnar með hagaðilum á Austurlandi um landsbyggðarvagna.
Lagt fram til kynningar.

Byggðaráð Múlaþings - 184. fundur - 24.03.2026

Fyrir liggur fundargerð frá samráðsfundi Vegagerðarinnar með hagaðilum á Austurlandi um landsbyggðarvagna frá 11. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

Byggðaráð Múlaþings - 202. fundur - 20.10.2026

Fyrir liggur kynning Vegagerðarinnar um landsbyggðarvagna og almenningssamgöngur á Austurlandi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings leggur ríka áherslu á að almenningssamgöngur innan sveitarfélagsins og á Austurlandi öllu séu góðar, áreiðanlegar og vel tengdar. Múlaþing er víðfeðmt sveitarfélag með nokkra byggðakjarna og góðar almenningssamgöngur skipta miklu máli til að íbúar komist til vinnu, í nám og til að sækja þjónustu, þar á meðal heilbrigðisþjónustu.

Byggðaráð hvetur Vegagerðina til að hafa gott samráð við sveitarfélagið og Samband sveitarfélaga á Austurlandi um skipulag og þróun almenningssamgangna á svæðinu og lýsir sig reiðubúið til samstarfs um úrbætur.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Getum við bætt efni þessarar síðu?