Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

189. fundur 19. maí 2026 kl. 08:30 - 09:55 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Vilhjálmur Jónsson varaformaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Hildur Þórisdóttir aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
  • Guðlaugur Sæbjörnsson
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri, sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Öldugata 14 Seyðisfirði

Málsnúmer 202209107Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni frá forstöðumanni Skaftfells um að Öldugata 14 komist í eigu Skaftfells en menningarmiðstöðin hefur um árabil haft húsið á leigu og rekið þar prentverkstæði og íbúð sem leigð er til listamannadvalar. Málið var síðast tekið fyrir á fundi byggðaráðs 16. desember 2025.
Í vinnslu.

3.Stýrihópur um framtíðarskipulag náttúrustofu

Málsnúmer 202605023Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar erindi frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, dagsett 4. maí 2026, um skipun starfshóps sem falið er það hlutverk að leggja fram tillögur að framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa landsins.
Lagt fram til kynningar.

4.Fundargerðir stjórnarfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202601172Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar fundargerðir 94., 95., 96. og 97. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 23. janúar, 20. febrúar, 3. mars og 8. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.

5.Fundagerðir SSA 2026

Málsnúmer 202601173Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi frá 24. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.

6.Fundagerðir Austurbrúar 2026

Málsnúmer 202601174Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Austurbrúar frá 24. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.

7.Ársfundur Brákar íbúðarfélags hses 28.apríl 2026

Málsnúmer 202604065Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundagerð ársfundar Brákar íbúðafélags vegna ársins 2025 sem fram fór 28. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:55.

Getum við bætt efni þessarar síðu?