Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

190. fundur 09. júní 2026 kl. 08:30 - 11:29 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Eiður Ragnarsson varaformaður
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ívar Karl Hafliðason varamaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Guðlaugur Sæbjörnsson starfsmaður
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Erindisbréf nefnda

Málsnúmer 202206247Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar erindisbréf byggðaráðs Múlaþings sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar 3. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

2.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri, sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

3.Fundir byggðaráðs Múlaþings

Málsnúmer 202606024Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að fyrirkomulagi funda byggðaráðs Múlaþings til loka maí 2027.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að fastur fundartími byggðaráðs verði að jafnaði á þriðjudögum þrisvar í mánuði. Ekki verði fundað í byggðaráði í sömu viku og sveitarstjórn fundar og í júlí og desember verði haldnir einn til tveir fundir.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Kosning fulltrúa í embætti, stjórnir, ráð og nefndir

Málsnúmer 202605189Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að boða þarf hluthafafund í HEF veitum ehf. til að skipa fulltrúa í nýja stjórn félagsins samkvæmt afgreiðslu sveitarstjórnar frá 3. júní 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings beinir því til stjórnar HEF veitna ehf. að boða til hluthafafundar þar sem ný stjórn félagsins verði skipuð. Sveitarstjóra er veitt umboð til að fara með atkvæði sveitarfélagsins á fyrirhuguðum hluthafafundi.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Aðstaða fyrir kjörna fulltrúa

Málsnúmer 202410106Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tilboð, dagsett 1. júní 2026, um áframhaldandi leigu á aðstöðu fyrir kjörna fulltrúa á Setrinu vinnustofu. Tilboðið gildir til 30. júní 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi tilboð um áframhaldandi leigu til eins árs á aðstöðu fyrir kjörna fulltrúa á Setrinu vinnustofu, og felur sveitarstjóra að ganga frá samningi.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Framtíðaruppbygging atvinnulífs á Seyðisfirði

Málsnúmer 202310203Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga um framlengingu á starfstíma samráðshóps um framtíðaruppbyggingu atvinnulífs á Seyðisfirði, en í samþykkt um stjórn Múlaþings kemur fram að umboð verkefnabundinna starfshópa falli sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils sveitarstjórnar og því nauðsynlegt að framlengja starfstímann á nýju kjörtímabili.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að framlengja starfstíma samráðshóps um framtíðaruppbyggingu atvinnulífs á Seyðisfirði inn á nýtt kjörtímabil á grundvelli gildandi erindisbréfs frá desember 2025.

Byggðaráð tilnefnir Þórhildi Katrínu Stefánsdóttur og Ásrúnu Mjöll Stefánsdóttur sem fulltrúa ráðsins í hópnum.

Sveitarstjóra er falið að óska eftir tilnefningu frá heimastjórn Seyðisfjarðar svo unnt sé að ljúka endurskipun hópsins á næsta fundi ráðsins.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Fasteignir Múlaþings í Brúarási

Málsnúmer 202605114Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun fjölskylduráðs Múlaþings frá 19. maí 2026 þar sem byggðaráð er hvatt til að endurskoða ákvörðun sína um sölu á einbýlishúsi í Brúarási.
Í vinnslu.

8.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202601171Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 8. og 28. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.

9.Fundargerðir stjórnar Samtaka Orkusveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202602127Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 2. mars 2026 og 10. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.

10.Fundargerðir stjórnar Tækniminjasafns Austurlands

Málsnúmer 202602139Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Tækniminjasafns Austurlands frá 13. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.

11.Fundargerðir stjórnar HEF 2026

Málsnúmer 202601113Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar HEF veitna ehf. frá 12. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.

12.Boð um þátttöku í samráði. Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga)

Málsnúmer 202605223Vakta málsnúmer

Fyrir liggja í samráðsgátt frá innviðaráðuneytinu áform um breytingu á gjaldaákvæði hafnalaga nr. 61/2003. Frestur til að skila umsögn er til 19. júní 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að skila umsögn um áformin í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Fundi slitið - kl. 11:29.

Getum við bætt efni þessarar síðu?