Fara í efni

Fasteignir Múlaþings í Brúarási

Málsnúmer 202605114

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 160. fundur - 19.05.2026

Til umræðu er ákvörðun á 171. fundi byggðarráðs, dagsett 25. nóvember 2025, um að selja einbýlishúsið í Brúarási þegar það losnar.
Fjölskylduráð telur mikilvægt að húsnæðið í Brúarási verði áfram í eigu sveitarfélagsins enda geti aðgengi að húsnæði skipt sköpum við ráðningu starfsfólks við skólann. Ráðið leggur jafnframt áherslu á að sveitarfélagið styðji markvisst við dreifbýlið og tryggi áframhaldandi skólastarf í Brúarásskóla meðal annars með því að geta boðið upp á húsnæði.
Fjölskylduráð hvetur því byggðaráð til að endurskoða ákvörðun sína.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Byggðaráð Múlaþings - 190. fundur - 09.06.2026

Fyrir liggur bókun fjölskylduráðs Múlaþings frá 19. maí 2026 þar sem byggðaráð er hvatt til að endurskoða ákvörðun sína um sölu á einbýlishúsi í Brúarási.
Í vinnslu.

Byggðaráð Múlaþings - 191. fundur - 16.06.2026

Fyrir liggur bókun fjölskylduráðs Múlaþings frá 19. maí 2026 þar sem byggðaráð er hvatt til að endurskoða ákvörðun sína um sölu á einbýlishúsi í Brúarási. Byggðaráð tók málið fyrir á fundi 9. júní 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings tekur undir bókun fjölskylduráðs Múlaþings og mun taka fasteignina af lista yfir húsnæði sem á að setja í söluferli.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?