Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

204. fundur 03. nóvember 2026 kl. 08:30 - 11:25 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Eiður Ragnarsson varaformaður
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
Fundargerð ritaði: Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri, sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála fóru yfir stöðu við vinnu fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030 á grundvelli rammaáætlunar sem samþykkt var af sveitarstjórn 9. september 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að vísa drögum að fjárhagsáætlun Múlaþings fyrir árin 2027-2030 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

3.Fjárfestingaráætlun 2027

Málsnúmer 202610125Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur tíu ára fjárfestingaráætlun umhverfis- og framkvæmdasviðs.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkti fyrir sitt leyti áætlunina á 197. fundi sínum 26. október síðastliðinn, og vísaði fjárfestingaráætluninni til byggðarráðs til afgreiðslu.

Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda situr fundinn undir þessum lið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að vísa drögum að fjárfestingaráætlun Múlaþings til samþykkis hjá sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Tjaldsvæðið á Seyðisfirði

Málsnúmer 202609077Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað frá verkefnastjóra atvinnumála og sviðstjóra framkvæmda um framtíðarfyrirkomulag tjaldsvæðisins á Seyðisfirði.

Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda og Alda Marín Kristinsdóttir verkefnastjóri atvinnumála sitja fundinn undir þessum lið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar hjá heimastjórn Seyðisfjarðar. Að því loknu komi málið til byggðaráðs til endanlegrar afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Sænautasel

Málsnúmer 202209144Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað sviðsstjóra stjórnsýslu um stöðu Sænautasels, en
samningur um leigu á staðnum rennur út 31. desember 2026.

Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri vakti athygli á vanhæfi sínu í upphafi máls. Formaður bar vanhæfið upp til atkvæðagreiðslu. Ráðið samþykkti samhljóða að Dagmar Ýr væri vanhæf við umræður og afgreiðslu málsins. Dagmar Ýr vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar hjá heimastjórn Fljótsdalshéraðs. Að því loknu komi málið til byggðaráðs til endanlegrar afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Áætlun eignamarka, jarðir í eigu Múlaþings

Málsnúmer 202610186Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun hefur birt drög að áætlun um eignamörk jarða á Norðaustur- og Austurlandi, þar á meðal fyrir 22 jarðir í eigu Múlaþings.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðarráð felur skipulagsfulltrúa að vinna athugasemdir við framlagða áætlun eignamarka eftir því sem tilefni er til og óska eftir umsögnum hjá heimastjórnum. Að því loknu komi málið aftur til afgreiðslu hjá byggðaráði.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Íslensk lestrarmenning

Málsnúmer 202606176Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrslan Lestur er lýðheilsa: Könnun á viðhorfum starfsfólks bókasafns og sveitarfélaga til lestrarmenningar í sveitarfélögum landsins, gefin út af Félagi íslenskra bókaútgefenda.
Lagt fram til kynningar.

8.Fundagerðir Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, SSKS 2026

Málsnúmer 202601167Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð 93. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum frá 5. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

9.Fundargerðir stjórnarfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202601172Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar fundargerðir 99., 100., og 101. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 24. ágúst, 21. september og 2. október.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:25.

Getum við bætt efni þessarar síðu?