Fara í efni

Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 192. fundur - 23.06.2026

Sviðsstjóri fjármála kynnti tillögu að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030.
Í vinnslu.

Byggðaráð Múlaþings - 193. fundur - 07.07.2026

Sviðsstjóri fjármála kynnti tillögu að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030.
Í vinnslu.

Heimastjórn Seyðisfjarðar - 70. fundur - 30.07.2026

Fyrir liggja drög að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030. Óskað er eftir áherslum heimastjórnar við gerð fjárhagsáætlunarinnar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Starfsmanni falið að koma tillögum sem ræddar voru á fundinum til viðkomandi fagráða.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Djúpavogs - 72. fundur - 06.08.2026

Fyrir liggja drög að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030. Óskað er eftir áherslum heimastjórnar við gerð fjárhagsáætlunarinnar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Starfsmanni falið að uppfæra núverandi vinnuskjal heimastjórnar í samræmi við umræður á fundinum og skila til sviðsstjóra fjármála.

Heimastjórn Borgarfjarðar - 71. fundur - 10.08.2026

Fyrir liggja drög að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030. Óskað er eftir áherslum heimastjórnar við gerð fjárhagsáætlunarinnar.
Starfsmanni falið að vinna tillögur í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir á næsta fundi heimastjórnar.
Málið áfram í vinnslu.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 71. fundur - 10.08.2026

Fyrir liggja drög að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030. Óskað er eftir áherslum heimastjórnar við gerð fjárhagsáætlunarinnar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs felur starfsmanni að koma tillögum sem ræddar voru á fundinum til viðkomandi fagráða.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Byggðaráð Múlaþings - 195. fundur - 11.08.2026

Fyrir liggja drög að tillögu að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030.
Í vinnslu.

Byggðaráð Múlaþings - 196. fundur - 18.08.2026

Fyrir liggja drög að tillögu að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030.
Í vinnslu.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 190. fundur - 24.08.2026

Lögð eru fram til kynningar fyrstu drög að forgangsröðun verkefna á fjárfestingaráætlun 2027-2030.
Sviðsstjóri framkvæmda fer yfir vinnuna við drögin og kynnir fyrir ráðinu.
Lagt fram til kynningar.

Byggðaráð Múlaþings - 197. fundur - 25.08.2026

Fyrir liggja drög að tillögu að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030.
Í vinnslu.

Byggðaráð Múlaþings - 198. fundur - 01.09.2026

Fyrir liggja drög að tillögu að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi tillögu að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings og vísar henni til samþykktar hjá sveitarstjórn.

Byggðaráð brýnir fyrir sviðsstjórum og forstöðumönnum stofnana að sýna aðhald við gerð fjárhagsáætlunarinnar í ljósi óvissu í efnahagsmálum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Heimastjórn Borgarfjarðar - 72. fundur - 07.09.2026

Fyrir liggja drög að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028-2030. Óskað er eftir áherslum heimastjórnar við gerð fjárhagsáætlunarinnar. Málið var áður á dagskrá heimastjórnar 10. ágúst 2026.
Heimastjórn Borgarfjarðar leggur áherslu á viðhaldsverkefni umfram nýframkvæmdir og að verkefnum sem hafa verið í vinnslu verði lokið. Viðhaldsþörf er mikil, sérstaklega á fasteignum í eigu sveitarfélagsins og gatnakerfi. Heimastjórn telur meira áríðandi að klára þau verkefni sem fyrirliggjandi eru frekar en að fara í nýframkvæmdir.
Starfsmanni falið að koma áherslum heimastjórnar á framfæri við sviðstjóra viðeigandi sviða.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Sveitarstjórn Múlaþings - 71. fundur - 09.09.2026

Fyrir liggur tillaga að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030.
Til máls tók: Berglind Harpa Svavarsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir rammaáætlunina eins og hún liggur fyrir fundinum og vísar henni til vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 192. fundur - 14.09.2026

Lagðar eru fram til kynningar áherslur heimastjórna í byggðarkjörnum Múlaþings, sem lagðar eru fram inn í yfirstandandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2027-2030.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar áherslum heimastjórna til sviðsstjóra framkvæmda og inn í yfirstandandi vinnu við gerð fjárfestingaráætlunar.

Samþykkt samhljóða.

Byggðaráð Múlaþings - 199. fundur - 15.09.2026

Sveitarstjóri fer yfir stöðu vinnu fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030 á grundvelli rammaáætlunar sem samþykkt var af sveitarstjórn 9. september 2026. Þá liggja fyrir áherslur heimastjórna í Múlaþingi við gerð fjárhagsáætlunarinnar.
Í vinnslu.

Byggðaráð Múlaþings - 200. fundur - 22.09.2026

Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála fara yfir stöðu vinnu fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030 á grundvelli rammaáætlunar sem samþykkt var af sveitarstjórn 9. september 2026.
Í vinnslu.

Byggðaráð Múlaþings - 201. fundur - 06.10.2026

Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála fóru yfir stöðu vinnu fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030 á grundvelli rammaáætlunar sem samþykkt var af sveitarstjórn 9. september 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að hækkanir almennra gjaldskráa í rekstri A-hluta sveitarfélagsins á árinu 2027 verði ekki umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands, 2,5%. Forsenda þess er að gildandi kjarasamningar haldi. Til að ná sameiginlegum markmiðum um lægri verðbólgu og vexti og bæta hag heimilanna þurfa allir að taka höndum saman.

Byggðaráð skorar á ríkisvaldið og stofnanir þess að fylgja góðu fordæmi sveitarfélaganna og takmarka með sambærilegum hætti hækkanir gjaldskráa og álögur á heimilin. Sameiginlegt aðhald og ábyrgð ríkis, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins eru lykilforsendur þess að sá árangur náist og kjarasamningar haldi.

Málið áfram í vinnslu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?