Fara í efni

Starfsumhverfi leikskóla

Málsnúmer 202602258

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 153. fundur - 03.03.2026

Fyrir liggur minnisblað til kynningar á starfsumhverfi leikskóla.
Í vinnslu.

Fjölskylduráð Múlaþings - 154. fundur - 17.03.2026

Fyrir liggur erindisbréf starfshóps um skipulag og starfsumhverfi leikskóla í Múlaþingi. Markmið starfshópsins er að vinna að tillögum að breytingum á skipulagi og starfsumhverfi leikskóla Múlaþings með það að marki að mæta þörfum stafsmanna, barna og foreldra.
Í starfshópnum sitja:
Fyrir meirihlutann: Björg Eyþórsdóttir og Einar Freyr Guðmundsson, sem jafnframt er formaður starfshópsins.
Fyrir minnihlutann: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir.
Áheyrnarfulltrúar fyrir minnihlutann eru Eyþór Stefánsson og Þórlaug Alda Gunnarsdóttir.
Áheyrnarfulltrúi foreldra er Dagur Rafnsson.
Leikskólastjórnendur tilnefna áheyrnarfulltrúa úr sínum hópi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fjölskylduráð Múlaþings - 162. fundur - 15.06.2026

Fyrir liggja tillögur til umfjöllunar frá starfshópi um breytingar á skipulagi og starfsumhverfi leikskóla í Múlaþingi. Starfshópurinn hefur nú lokið störfum.
Fjölskylduráð ræddi tillögurnar og þakkar starfshópnum fyrir störf sín.

Fjölskylduráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram og óska eftir umsögnum frá heimastjórnum Múlaþings, stéttarfélögum, foreldraráðum leikskóla, starfsmönnum leikskóla og öðrum hagaðilum, áður en málið verður lagt aftur fyrir ráðið til frekari umfjöllunar og síðar afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 70. fundur - 24.06.2026

Fyrir liggur beiðni frá fjölskylduráði um umsögn heimastjórnar Fljótsdalshéraðs varðandi tillögur starfshóps um breytingar á skipulagi og starfsaðstæðum leikskóla sveitarfélagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs felur starfsmanni að skrifa umsögn í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir næsta fund heimastjórnar til samþykktar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Borgarfjarðar - 70. fundur - 25.06.2026

Fyrir liggur beiðni frá fjölskylduráði um umsögn heimastjórnar Borgarfjarðar varðandi tillögur starfshóps um breytingar á skipulagi og starfsaðstæðum leikskóla sveitarfélagsins.
Í upphafi máls vakti Óttar Már athygli á mögulegu vanhæfi sínu. Var það borið upp og fellt samhljóða með handauppréttingu.
Heimastjórn felur starfsmanni að afla frekari gagna í samræmi við umræður á fundinum.
Málinu frestað.

Heimastjórn Djúpavogs - 71. fundur - 26.06.2026

Fjölskylduráð Múlaþings óskar hér með eftir umsögn heimastjórnar Djúpavogs um meðfylgjandi skjal, þar sem lagðar eru fram tillögur starfshóps um breytingar á skipulagi og starfsaðstæðum leikskóla sveitarfélagsins.
Heimastjórn fagnar þessari vinnu og gerir ekki athugasemdir við tillögur starfshópsins.

Samþykkt samhljóða.

Heimastjórn Seyðisfjarðar - 70. fundur - 30.07.2026

Fjölskylduráð Múlaþings óskar eftir umsögn heimastjórnar Seyðisfjarðar um meðfylgjandi skjal, þar sem lagðar eru fram tillögur starfshóps um breytingar á skipulagi og starfsaðstæðum leikskóla sveitarfélagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn fagnar þessari vinnu og gerir ekki athugasemdir við tillögur starfshópsins.

Samþykkt samhljóða meðal handauppréttingu.

Heimastjórn Borgarfjarðar - 71. fundur - 10.08.2026

Fyrir liggur beiðni frá fjölskylduráði um umsögn heimastjórnar Borgarfjarðar varðandi tillögur starfshóps um breytingar á skipulagi og starfsaðstæðum leikskóla sveitarfélagsins. Málið var áður dagskrá heimastjórnar 25. júní 2026.

Marta Wium Hermannsdóttir, leikskólafulltrúi kom inn á fundinn og þakkar heimastjórn henni fyrir góða kynningu.
Heimastjórn þakkar vinnuhópnum fyrir góða vinnu og er ánægð með að tekið sé tillit til mismunandi aðstæðna í kjörnum sveitarfélagsins þegar kemur að leikskólamálum. Heimastjórn er fylgjandi leið tvö er varðar starfsemi leikskólans Glaumbæjar á Borgarfirði, sem felur í sér að leikskólinn verði áfram gjaldfrjáls en foreldrar greiði fyrir skráningardaga. Leikskólinn starfi áfram samkvæmt eigin skóladagatali.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Gestir

  • Marta Wium Hermannsdóttir - mæting: 10:30

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 71. fundur - 10.08.2026

Fyrir liggur beiðni frá fjölskylduráði um umsögn heimastjórnar Fljótsdalshéraðs varðandi tillögur starfshóps um breytingar á skipulagi og starfsaðstæðum leikskóla sveitarfélagsins. Málið var á dagskrá heimastjórnar 24. júní 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs gerir ekki athugasemdir við tillögur starfshópsins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fjölskylduráð Múlaþings - 167. fundur - 14.09.2026

Fyrir liggja umsagnir frá ýmsum hagaðilum vegna tillagna um breytingar á skipulagi og starfsumhverfi leikskóla í Múlaþingi. Jafnframt liggur fyrir samantekt á helstu sjónarmiðum og ábendingum sem fram koma í umsögnunum, ásamt tillögum að úrbótum.
Fjölskylduráð þakkar öllum þeim hagaðilum sem sendu inn umsagnir fyrir mikilvægt framlag til umræðunnar. Umsagnirnar hafa verið rýndar og tillögur mótaðar um breytingar á skipulagi og starfsumhverfi leikskóla í Múlaþingi. Tillögurnar voru kynntar á fundinum og er málið áfram í vinnslu.

Fjölskylduráð Múlaþings - 170. fundur - 05.10.2026

Fyrir liggja tillögur starfshóps um skipulag og starfsumhverfi leikskóla í Múlaþingi. Hlutverk starfshópsins var að fara yfir skipulag og starfsumhverfi leikskólanna og leggja fram tillögur að úrbótum með þarfir barna, starfsfólks og foreldra að leiðarljósi. Málið hefur áður verið til umfjöllunar í fjölskylduráði.
Fjölskylduráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögur starfshóps um skipulag og starfsumhverfi leikskóla í Múlaþingi með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum og vísar þeim til sveitarstjórnar til samþykktar. Ráðið leggur til að breytingarnar taki gildi frá og með 1. janúar 2027. Ráðið telur mikilvægt að fylgst verði með áhrifum breytinganna og að þær verði metnar að ákveðnum tíma liðnum, með það að markmiði að sjá hvernig þær reynast í framkvæmd og hvort tilefni sé til frekari breytinga.

Ráðið þakkar starfshópnum fyrir vandaða og umfangsmikla vinnu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Sveitarstjórn Múlaþings - 72. fundur - 14.10.2026

Fyrir liggja tillögur starfshóps um skipulag og starfsumhverfi leikskóla í Múlaþingi. Hlutverk starfshópsins var að fara yfir skipulag og starfsumhverfi leikskólanna og leggja fram tillögur að úrbótum með þarfir barna, starfsfólks og foreldra að leiðarljósi. Fjölskylduráð samþykkti tillögurnar á fundi sínum 5. október 2026.
Til máls tóku: Herdís Magna Gunnarsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Þórey Birna Jónsdóttir, Ívar Karl Hafliðason.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi tillögur starfshóps um skipulag og starfsumhverfi leikskóla í Múlaþingi. Sveitarstjórn felur fjölskylduráði að innleiða tillögurnar og leggja til nauðsynlegar breytingar á reglum í samræmi við þær. Jafnframt er sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu falið að auglýsa breytingarnar og kynna þær öllum hlutaðeigandi með góðum fyrirvara. Breytingarnar taki gildi 1. janúar 2027.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?