Fara í efni

Mönnun i Íþróttamiðstöð Djúpavogs

Málsnúmer 202606164

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Djúpavogs - 71. fundur - 26.06.2026

Erindi frá Íbúasamtökum Djúpavogs og nærsveita um mönnun Íþróttamiðstöðvar Djúpavogs.
Heimastjórn Djúpavogs tekur heilshugar undir með íbúasamtökum Djúpavogs og bendir á að þetta mál hafi verið rætt áður, en engar úrbætur komið til framkvæmda.
Um er að ræða mikið öryggismál fyrir gesti Íþróttamiðstöðvar Djúpavogs allt árið um kring og mikilvægt er að brugðist verði við án tafar.

Heimastjórn vísar erindinu til fjölskylduráðs.

Samþykkt samhljóða.

Fjölskylduráð Múlaþings - 166. fundur - 31.08.2026

Heimastjórn Djúpavogs vísaði til fjölskylduráðs erindi íbúasamtaka Djúpavogs varðandi öryggi og mönnun í íþróttamiðstöðinni. Í kjölfarið hefur verið tekið saman minnisblað um núverandi mönnun, opnunartíma og kostnað við starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar. Minnisblaðið er lagt fram til umfjöllunar í fjölskylduráði.
Deildarstjóri íþrótta og tómstunda fór yfir minnisblað um stöðu málsins. Fjárhagsáætlun næsta árs gerir ekki ráð fyrir auknum stöðugildum í Íþróttamiðstöð Djúpavogs en fjölskylduráð tekur undir áhyggjur heimastjórnar og er starfsmanni falið að fylgja eftir minnisblaði við heimastjórn Djúpavogs.

Getum við bætt efni þessarar síðu?