Málsnúmer 202209244Vakta málsnúmer
Hitavatnsleit:
Beðið er eftir mælingabíl og starfsmönnum ISOR, en gert er ráð fyrir því að mæla þær holur sem nú þegar er búið að bora til að ákveða næstu skref.
Þjónustumiðstöð:
Viðræður eru í gangi milli Múlþings, Björgunarsveitinnar Báru og Rauðakrossdeildar Djúpavogs, um kaup á Sambúð fyrir þjónustumiðstöð. Einnig er gert ráð fyrir því að Djúpavogshöfn og HEF veitur verði með aðstöðu í húsinu.
Almenningssamgöngur:
Verið er að vinna umsókn til Byggðastofnunar, um framlag til almenningssamgangna milli Djúpavogs og Egilsstaða.
Hammondhátíð:
Búið er að gefa út dagskrá Hammondhátíðar og verið er að vinna í utanhátíðardaskrá.
Slökkvistöðin:
Verktaki hefur lokið við þann áfanga sem boðinn var út á síðasta ári og slökkvistöðin komin í fulla notkun. Gert er ráð fyrir að unnið verði í viðhaldi utanhúss í sumar.
Chittaslow:
Cittaslowráðið hefur fundað einu sinni það sem af er ári, verið er að vinna í undirbúningi fyrir Hammondhátiðina.
Starfsemin í Geysi:
Fulltrúi sveitarstjóra hefur sagt starfi sínu lausu frá og með síðustu mánaðarmótum, gert er ráð fyrir að auglýsa starfið sem fyrst.
Samþykkt samhljóða.