Fara í efni

Deiliskipulagsbreyting, Djúpivogur, athafnasvæði við Innri-Gleðivík

Málsnúmer 202507004

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 175. fundur - 23.02.2026

Fyrir liggur vinnslutillaga vegna breytinga á deiliskipulagi athafnasvæðis við Innri-Gleðivík á Djúpavogi. Breytingin er tilkomin vegna fyrirhugaðra framkvæmda við tengingu Víkurlands við Hringveginn og í samræmi við kröfur Vegagerðarinnar um gatnahönnun. Lóðamörk og tengingar hafa verið endurskoðaðar og tveimur lóðum bætt við.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að leggja til við heimastjórn Djúpavogs að fyrirliggjandi skipulagstillaga verði kynnt í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?