Fara í efni

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs

69. fundur 07. maí 2026 kl. 13:00 - 16:02 á skrifstofu sveitarfélagsins, Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Vilhjálmur Jónsson formaður
  • Jóhann Gísli Jóhannsson aðalmaður
  • Guðný Drífa Snæland varamaður
Starfsmenn
  • Hlynur Jónsson fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson fulltrúi sveitarstjóra

1.Atvinnumál í Múlaþingi

Málsnúmer 202511153Vakta málsnúmer

Á fundinn undir þessum lið mætir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri.
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar Dagmar fyrir komuna á fundinn og góða yfirferð.

2.Deiliskipulag, Gilsárvirkjun

Málsnúmer 202401135Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Fljótsdalshéraðs að samþykkja framlagt deiliskipulag samkvæmt 42. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma, en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum. Inn á fundinn undir þessum lið mætti Einar Andrésson, svæðisstjóri Eflu á Austurlandi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar Einari fyrir komuna á fundinn.
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir framlagt deiliskipulag, samkvæmt 42. gr. skipulagslaga, með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Deiliskipulagsbreyting, Grund við Stuðlagil, breytt lóðamörk

Málsnúmer 202503209Vakta málsnúmer

Breyting á deiliskipulagi Grundar við Stuðlagil var auglýst samkvæmt 41. gr. skipulagslaga 123/2010 með athugasemdafresti frá 12. febrúar til 30. mars 2026, athugasemdir bárust frá 3 aðilum. Fyrir liggur uppfærð skipulagstillaga þar sem brugðist hefur verið við ábendingum frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir fyrirliggjandi skipulagsáætlun samkvæmt 42. gr. skipulagslaga.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Samfélagsverkefni heimastjórna 2026

Málsnúmer 202601217Vakta málsnúmer

Fyrir liggja hugmyndir að samfélagsverkefnum sem íbúar hafa sent til heimastjórnar á Fljótsdalshéraði, en frestur til að skila hugmyndum rann út 25. mars 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs felur starfsmanni að koma tillögum heimastjórnar til umhverfis- og framkvæmdasviðs.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Íbúafundir heimastjórnar Fljótsdalshéraðs

Málsnúmer 202605018Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samantekt frá umræðu á íbúafundum heimastjórnar Fljótsdalshéraðs sem fram fóru í Brúarásskóla, í gamla barnaskólanum Eiðum, á Arnhólsstöðum í Skriðdal og í Sláturhúsinu á Egilsstöðum 20. og 21. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs felur starfsmanni að taka saman atriðin sem fram komu á íbúafundunum í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir næstu fundi heimastjórnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 16:02.

Getum við bætt efni þessarar síðu?