Fara í efni

Heimastjórn Seyðisfjarðar

11. fundur 31. maí 2021 kl. 09:30 - 10:30 á skrifstofu sveitarfélagsins, Seyðisfirði
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Ólafur H Sigurðsson aðalmaður
  • Rúnar Gunnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Aðalheiður L Borgþórsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði: Aðalheiður Borgþórsdóttir fulltrúi sveitarstjóra

1.Auglýsing um umferð í Múlaþingi

Málsnúmer 202102223Vakta málsnúmer

Við athugun kom í ljós að inn í listann yfir götur með 40 km hámarkshraða vantar Hafnargötuna. Heimastjórn ítrekar áður framkomnar tillögur um tvær vistgötur á Seyðisfirði, hluti Suðurgötu og Norðurgötu.

2.Seyðisfjörður_Deiliskipulag íbúðasvæði við Garðarsveg

Málsnúmer 202102069Vakta málsnúmer

Fyrir Heimastjórn liggur tillaga að deiliskipulagi íbúðasvæðis við Garðarsveg á Seyðisfirði til afgreiðslu. Jafnframt liggja fyrir drög að umsögnum um athugasemdir sem bárust á auglýsingatíma tillögunnar.

Eftirfarandi tillaga var lögð fram á 23. fundi Umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 26.05.2021:
"Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að nýju deiliskipulagi, með áorðnum breytingum er varða fjölda bílastæða og legu gangstíga. Ráðið samþykkir fyrirliggjandi drög að umsögnum um fram komnar athugasemdir.

Ráðið leggur áherslu á mikilvægi þess að skipuleggja á Seyðisfirði íbúðalóðir fyrir minni íbúðir í rað- og parhúsum auk smærri fjölbýlishúsa (allt að fjórar íbúðir), en slíkar lóðir er ekki að finna á Seyðisfirði í dag, utan hættusvæða. Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að gengið verði til samninga við þá verktaka sem áform hafa um byggingu íbúða á skipulagssvæðinu og í framhaldinu verði lausar lóðir auglýstar.

Umhverfis- og framkvæmdaráð felur framkvæmda- og umhverfismálastjóra að efna til íbúasamráðs á Seyðisfirði um næstu skref í skipulagi íbúðabyggðar á Seyðisfirði. Þar verði tekin til skoðunar svæði sem þegar eru deiliskipulögð fyrir íbúðabyggð en ekki verið byggt á öllum lóðum og einnig svæði sem skilgreind eru sem íbúðasvæði í aðalskipulagi en ekki hafa enn verið deiliskipulögð."

Heimastjórn Seyðisfjarðar samþykkir tillögur umhverfis- og framkvæmdaráðs bæði varðandi nýja tillögu að deiliskipulagi og drög að umsögnum við þær athugasemdir sem bárust á auglýsingatíma tillögunnar. Heimastjórn leggur þó áherslu á að gerðar verði hæðarmælingar á nærliggjandi húsum áður en framkvæmdir hefjast við grundun húsa á vallarsvæðinu. Með því verða til gögn til samanburðar ef upp kæmi ágreiningur um jarðvegssig í nærliggjandi húsum. Heimastjórn styður þá tillögu að gert verði fræðsluskilti um sögu vallarins eins og fram kemur í umsögn Minjastofnunar frá 30. apríl 2021. Heimastjórn tekur undir óskir heimamanna um að knattspyrnuvelli verði fundinn nýr staður sem fyrst. Ljóst er á umsögnum heimamanna að mikið tilfinningamál er að missa knattspyrnuvöllinn, heimastjórn tekur undir áhyggjur heimamanna og krefst þess að undirbúningur að nýju vallarstæði og athugun á uppbyggingu nýs vallar hefjist strax. Heimastjórn styður jafnframt þá þörfu og góðu tillögu að efna til íbúasamráðs á Seyðisfirði um næstu skref í skipulagi íbúðabyggðar

3.Umsókn um að koma fyrir tímabundið útilistaverki í skúlptúrhluta Hafnargarðsins (á landfyllingu) á Seyðisfirði

Málsnúmer 202105127Vakta málsnúmer

Heimastjórn samþykkir erindið en leggur áherslu á góðan frágang svæðisins þegar verkið verður fjarlægt.

4.Sumarleyfi heimastjórnar Seyðisfjarðar

Málsnúmer 202105287Vakta málsnúmer

Lagt er til að júnífundurinn verði mánudaginn 28. júní ef að tilefni er til. Ágústfundurinn verður mánudaginn 16. ágúst.

Fundi slitið - kl. 10:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?