Fara í efni

Heimastjórn Seyðisfjarðar

67. fundur 10. apríl 2026 kl. 09:00 - 11:35 á skrifstofu sveitarfélagsins, Seyðisfirði
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Jón Halldór Guðmundsson aðalmaður
  • Margrét Guðjónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Inga Þorvaldsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Inga Þorvaldsdóttir fulltrúi sveitarstjóra

1.Beiðni um land undir hreindýragarð á Seyðisfirði

Málsnúmer 202603201Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að taka afstöðu vegna beiðni um land undir hreindýragarð yfir sumartímann á Seyðisfirði. Hlynur Jónsson sviðstjóri stjórnsýslu og Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda sitja fundinn undir þessum lið.
Eftirfarandi bókun lögð fram:
Heimastjórn Seyðisfjarðar áréttar sem fyrr að þegar veitt eru tímabundin leyfi um afnot af landi að þá séu þau vel skilgreind hvað varðar tímalengd, umgengni um svæðið og frágang að notkun lokinni. Jafnframt skal ábyrgðaraðili hafa öll tilskilin leyfi til rekstrar. Málsaðila er bent á að tryggja góðar merkingar um aðkomu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Vetrarþjónusta á Fjarðarheiði

Málsnúmer 202603225Vakta málsnúmer

Páll Birgir deildarstjóri og Loftur þór Jónsson svæðisstjóri austursvæðis Vegagerðarinnar mun sitja fundinn undir þessum lið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Seyðisfjarðar leggur áherslu á að Vegagerðin bæti upplýsingagjöf á umferdin.is og í upplýsingasíma sínum 1777 auk þess sem heimastjórn sér tækifæri í því að Vegagerðin auki við upplýsingagjöf á samfélagsmiðlum.
Einnig telur heimastjórn að brýnt sé að farið verið yfir verklag vetrarþjónustu á Fjarðarheiði en þjónustutími er frá kl. 07.00 til 21.30. Mikilvægt er að veittir séu nægjanlegir fjármunir til þjónustunnar sem auk þess sem tryggja þarf að tjón á tækjum hamli ekki þjónustunni. Heimastjórn telur mikilvægt að kannaðir séu möguleikar þess að þjónusta Fjarðarheiði einnig frá Seyðisfirði.
Heimastjórn hvetur Vegagerðina til að skoða nánar fyrirkomulag fylgdaraksturs í vissum aðstæðum svo ekki komi til jafnlangra lokana kafla eins og undanfarnar vikur. Í þeim tilvikum þegar fylgdarakstur hefur verið veittur hefur það aukið öryggi við erfiðar aðstæður.
Heimastjórn þakkar fulltrúum Vegagerðarinnar fyrir gott samtal.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Bókasafn Múlaþings á Seyðisfirði, aðstaða

Málsnúmer 202601142Vakta málsnúmer

Til umræðu var flutningur á bókasafni Seyðisfjarðar. Elsa Guðný Björgvinsdóttir deildarstjóri menningarmála fór yfir stöðu mála. Málið var áður á dagskrá heimastjórnar 5.febrúar sl.
Málið áfram í vinnslu.

4.Staða verkefna á Seyðisfirði á umhverfis- og framkvæmdasviði

Málsnúmer 202604016Vakta málsnúmer

Hugrún Hjálmarsdóttir,sviðstjóri framkvæmda kom inn á fundinn og fór yfir stöðu verkefna og það sem framundan er hér á Seyðisfirði.
Heimastjórn þakkar Hugrúnu fyrir góða yfirferð og greinagóð svör. Hugrún mun kynna fyrirhugaðar framkvæmdir á næsta íbúafundi heimastjórnar í lok apríl.

Lagt fram til kynningar

5.Íbúafundur heimastjórnar Seyðisfjarðar

Málsnúmer 202604002Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að dagsetja næsta íbúafund heimastjórnar Seyðisfjarðar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn felur starfsmanni að undirbúa og auglýsa íbúafund á Seyðisfirði sem haldinn verður 29.apríl næstkomandi kl. 16:30

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Seyðisfirði

Málsnúmer 202601161Vakta málsnúmer

Skólinn í útboð: Nú hillir loks undir að hægt verði að setja byggingu nýs grunnskóla á Seyðisfirði í útboð. Áætlað er að hönnun og útboðsgögn klárist nú í apríl og auglýsing fari svo í loftið snemma í sumar.

Hafnargata 44. Bæjarskrifstofan: Ákveðið hefur verið að framtíðarstaðsetning bæjarskrifstofu Seyðisfjarðar og bókasafns verði á efri hæð Herðubreiðar. Hönnun komin á fullt skrið. Vegna undirbúnings fyrir flutning bæjarskrifstofunnar á nýjan stað í bænum mun starfsemi skrifstofunnar flytja tímabundið í annað húsnæði í sumar. Ekki er komin nákvæm tímasetning á flutninginn en vinnsla í fullum gangi.

Höfnin: Landtengingin er klár hafnarinnar megin, Norræna að verða klár þannig að stefnt er að hún geti tengst í lok apríl. Verið er að klára nýtt tollaport sem ætlað er fyrir Smyril Line og verið að fara í að laga umhverfi Angróbryggjunnar þar sem flotbryggjan verður færð þangað. Búið er að skipta um öll ljós í ferjuhúsinu og setja LED í allt, sem mun spara talsvert í rafmagnskostnaði.

Herðubreið: Verið er að skipta út bíóstólum í bíósal Herðubreiðar. Góður gangur er á verkefninu og er áætlað að hægt verði að vera með fyrstu bíósýningu í nýju stólunum í byrjun maí. Þá vonandi fer vel um stóra sem litla rassa og verður nóg pláss fyrir hávaxna sem lágvaxna.

Fundi slitið - kl. 11:35.

Getum við bætt efni þessarar síðu?